Meðal þeirra vopna sem Úkraínumenn notuðu til að koma í veg fyrir að Rússar næðu Kyiv á sitt vald voru Javelin skriðdrekavarnarflaugar. Eftir nokkurra vikna tilraunir til að ná Kyiv á sitt vald urðu Rússar að gefast upp og hörfa.
Bandaríkjamenn fluttu Javelinflaugar til Evrópu í stórum stíl en fram að þessu hafa Úkraínumenn fengið um 7.000 slíkar flaugar eða um þriðjung þess sem Bandaríkin áttu þegar stríðið braust út. Þetta sagði Joakim Paasikvi, yfirlautinant við sænska varnarmálaskólann, í samtali við Sænska ríkisútvarpið.
Hugveitan Stimson Center segir að Úkraína hafi fengið 8.500 Javelinflaugar.
Þær eru framleiddar af Raytheon og Lockheed Martin sem segjast þurfa þrjú til fjögur ár til að framleiða þennan fjölda. Fyrirtækin geta framleitt um 2.000 flaugar á ári en geta tvöfaldað framleiðsluna en þá mun það samt sem áður taka um tvö ár að framleiða um 8.000 flaugar.
Norska ríkisútvarpið segir að Javelinflaugarnar séu bara eitt dæmi um að vestrænar vopnageymslur séu farnar að tæmast og hefur eftir Tom Røseth, kennara við norska varnarmálaskólann, að meira hafi verið notað af vopnum í stríðinu en hafi verið framleitt. Sum ríki hafi gefið Úkraínu allt að helming ákveðinna vopnategunda sem þau eiga.
Í flestum ríkjum er því haldið leyndu hversu mikið hefur verið sent til Úkraínu og hversu mikið vantar í vopnageymslurnar. Røseth sagði að vopnaframleiðendur eigi fullt í fangi með að fylla á vopnageymslurnar.