Þetta sagði Oleksiy Arestovich, einn af hernaðarráðgjöfum Volodymyr Zelenskyy Úkraínuforseta, í samtali við The Times.
Það var mikið áfall fyrir ráðamenn í Kreml þegar rússneski herinn neyddist til að hörfa frá Kherson. Ósigurinn þar var niðurlægjandi og margir harðlínumenn eru öskureiðir. Það var meira að segja rætt um ósigurinn í rússnesku sjónvarpi en þar eru nú yfirleitt ekki rætt um ósigra Rússa á vígvellinum þótt af nægu sé að taka.
Arestovich sagði The Times að Pútín sé smeykur því í Rússlandi sé þeim ekki fyrirgefið sem tapa stríði. „Hann er að berjast fyrir lífi sínu núna. Ef hann tapar stríðinu, að minnsta kosti í huga Rússa, þýðir það endalokin. Endalok hans sem stjórnmálamanns. Og hugsanlega líkamleg endalok hans,“ sagði hann.
Hann sagði einnig að ósigurinn í Kherson hafi meira að segja neytt fólk, sem styður Pútín eindregið, til að efast um að Rússar geti unnið stríðið.
Arestovich sagðist telja að árásir Rússa á orkuinnviði í Úkraínu séu hluti af aðgerð þeirra til að „kúga“ Úkraínumenn og neyða þá að samningaborðinu.
Slíkar samningaviðræður myndu líklega enda með að Rússar héldu Krím, Donetsk og Luhansk en þetta eru úkraínsk landsvæði sem þeir hafa hertekið og innlimað á ólögmætan hátt.
Með þessu gæti Pútín lýst yfir sigri Rússa í stríðinu og þannig réttlætt stríðið fyrir rússnesku þjóðinni.
En það mun væntanlega ekki ganga vel hjá honum að fá Úkraínumenn að samningaborðinu. Þeir hafa yfirhönd í stríðinu núna og hafa ítrekað sagt að ekki verði sest við samningaborðið fyrr en Rússar hafi kallað allar hersveitir sínar frá herteknu svæðunum.