Reyksprengju var kastað inn um rúðu á einbýlishúsi í Fossvogi í Reykjavík í nótt. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan 01 vegna málsins. Um svipað leyti barst útkall vegna tilraunar til að kasta eldsprengju í einbýlishús í Hafnarfirði. Frá þessu var greint hjá Vísi í morgun.
Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfesti í samtali við Fréttablaðið að bæði málin tengist hnífsárásinni sem átti sér stað á Bankastræti Club á fimmtudaginn í síðustu viku. Íbúar beggja húsa voru heima þegar sprengjunum var varpað en engan sakaði.
Margeir segir að lögreglan hafi náð þokkalega utan um árásina sjálfa þó að tveggja eða þriggja aðila sé enn leitað. Lögreglan hafi óttast að árásin hefði afleiðingar á borð við þær sem áttu sér stað í nótt. Enginn hafi verið handtekinn vegna atvikanna í nótt en lögregla leiti þeirra sem stóðu að þessu.