Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til skoðunar óhugnanleg skilaboð sem farið hafa sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum þar sem fólk er varað við því að fara í miðbæinn næstu helgi. Í skilaboðunum kemur fram að meðlimir hópsins sem varð fyrir árásinni á Bankastræti Club síðastliðinn fimmtudag hyggi á hefndir og að í undirbúningi séu stunguárásir, bæði á dyraverði sem og almenna gesti skemmtistaða.
Þetta kemur fram í umfjöllun Fréttablaðsins en í samtali við blaðið sagði Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, að þar á bæ væru menn meðvitaðir um skilaboðin og málið sé í skoðun.
„Við erum bara að meta þetta og skoða og teljum okkur vita svona nokkuð hvaðan þetta kemur. Þannig að við ætlum að reyna að stoppa þetta í fæðingu,“ segir Margeir. Aðspurður segir hann of snemmt að segja til um hvort að viðbúnaður lögreglu verði aukinn næstu helgi.
Eins og fram hefur komið eiga margir þeirra, sem grunaðir eru um að hafa haft aðkomu að hnífaárásinni í Bankastræti Club, bakgrunn í dyravörslu eða starfa við fagið. Einn þeirra sem er í haldi lögreglu er dyravörðurinn John Pétur Vágseið, sem er á fertugsaldri og sagður reka fyrirtæki sem býður upp á dyravörslu fyrir skemmistaði og ýmsa viðburði. John Pétur er þó ekki skráður fyrir neinu slíku fyrirtæki í Fyrirtækjaskrá.
Samkvæmt heimildum DV var ekkert eitt atvik sem skýrir hvers vegna hnífaárásin umfangsmikla átti sér stað. Um hafi verið að ræða uppsafnaða gremju í garð hóps ungra mismyndismanna sem hafi vaðið uppi undanfarin misseri og hafi árásin átt að lækka í þeim rostann. Miðað við viðbrögð þeirra sem urðu fyrir árásinni hefur það ætlunarverk bersýnilega mistekist.
Einn þolenda árásarinnar á Bankastræti Club birti fyrir skömmu skilaboð á samfélagsmiðli sínum þar sem hann sagði ekkert hæft í sögusögnum um yfirvofandi árás næstu helgi. Sagði hann þetta augljóstlega vera kjaftæði og furðar sig á því að fólk trúi þessu.