fbpx
Miðvikudagur 26.febrúar 2025
Fréttir

Áralöngum og kostnaðarsömum deilum lokið

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 22. nóvember 2022 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Kristmannsson hefur brugðist við yfirlýsingu Alvogen um sátt sem gerð var í máli sem fyrirtækið hafði höfðað gegn Halldóri fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Halldór, sem er fyrrum framkvæmdastjóri há Alvotech og Alvogen segir í samtali við DV að hann fagni því að deilum hans og Róberts Wessman sé nú lokið með sátt.

Sjá einnig: Halldór Kristmannsson ekki uppljóstrari – Gerði sátt við Alvogen og lokar heimasíðunni

Samkvæmt tilkynningu Alvogen fólst í sáttinni að Halldór hafi afsalað sér stöðu uppljóstrara í öllum lögsögum og að hann muni í kjölfarið loka uppljóstrara-vefsíðu sinni.

Halldór segist eiga margar góðar minningar af samstarfi við Róbert og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.

„Ég á margar góðar minningar af samstarfi okkar Róberts sem hófst á árinu 2001. hann var þá forstjóri Delta og varð samstarf okkar náið og ávallt ríkti traust og virðing á milli okkar. Með stuttum hléum starfaði ég fyrir hann í 18 ár og ég hef verið hluthafi í Aztiq samstæðunni frá árinu 2012 en þá lagði ég fjármuni til fjármögnunar fyrirtækisins. Ég er spenntur að fylgjast með framgangi lyfjafyrirtækjanna á næstu árum og óska Róberti góðs gengis.“

Aðspurður staðfestir Halldór að í sáttinni felist fjárhagsuppgjör og það sé í raun ekkert leyndarmál. Það hafi verið með þeim hætti að launagreiðslur, áunnir kaupaukar og útlagður lögmannskostnaður, verði greidd af félaginu. „Ekki var um frekari greiðslur til mín að ræða, enda óskaði ég ekki eftir því. Ég vona að mér sé óhætt að upplýsa um þetta. Að öðru leyti er samkomulagið varið trúnaði og ég mun ekki tjá mig frekar um það í fjölmiðlum.“

Frá starfslokum Halldórs hjá lyfjafyrirtækjunum segist Halldór meðal annars hafa sinnt eigin fjárfestingum hér á landi og í Sviss, en hann býr nú þar ásamt fjölskyldu sinni. Eins hefur hann sinnt ráðgjafaverkum fyrir alþjóðleg fyrirtæki í lyfjaiðnaði og sjávarútvegi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Segir ámælisvert að ekki sé búið að banna umskurð drengja á Íslandi

Segir ámælisvert að ekki sé búið að banna umskurð drengja á Íslandi
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Bjarni Már segir að Íslendingar þurfi að stofna her og leyniþjónustu

Bjarni Már segir að Íslendingar þurfi að stofna her og leyniþjónustu
Fréttir
Í gær

Segja að Leigufélag aldraðra hafi orðið „fórnarlamb óráðvandra athafnamanna sem fyrst og fremst var umhugað um að þyngja eigin pyngju“

Segja að Leigufélag aldraðra hafi orðið „fórnarlamb óráðvandra athafnamanna sem fyrst og fremst var umhugað um að þyngja eigin pyngju“
Fréttir
Í gær

Frakkar slegnir vegna réttarhalda yfir lækni sem var hroðalegur barnaníðingur – Ætluð fórnarlömb um 300

Frakkar slegnir vegna réttarhalda yfir lækni sem var hroðalegur barnaníðingur – Ætluð fórnarlömb um 300