Daily Mail segir að fangarnir fái fulla sakaruppgjöf og megi búa hvar sem er í Rússlandi ef þeir lifa sex mánuði á vígvellinum af.
Fyrr í vikunni heimsótti Yevgeny Progozhin, eigandi Wagner málaliðafyrirtækisins, gúlög í austurhluta Síberíu og í austasta hluta Rússland til að fá fleiri fanga til að ganga til liðs við málaliðafyrirtækið en það berst í Rússlandi við hlið rússneska hersins.
Daily Mail segir að talið sé að mörg þúsund fangar hafi nú þegar fallið á vígvellinum því þeir séu notaðir sem fallbyssufóður til að hægja á sókn Úkraínumanna. Um 40 eru sagðir hafa verið teknir af lífi af liðsmönnum Wagner fyrir liðhlaup eða landráð. Þetta sagði Olga Romanova, talskona mannréttindasamtakanna Russia Behind Bars í samtali við Mozhem Obyasnit að sögn Daily Mail.
Hún sagði að heyrst hafi að Pútín sé farinn að taka nauðgara inn í herinn og einnig hafi „brjálæðingur“ verið tekinn úr fangelsi í Saratov, hann sé meðal annars með mannát á „ferilskrá“ sinni.
Hún sagði að talið sé að 30.000 til 35.000 fangar hafi verið látnir lausir til að fara til Úkraínu til að berjast. Hún sagði að talið sé að mörg hundruð morðingjar séu í þessum hópi.