Tólf kennarar við Menntaskólann í Kópavogi unnu í gær sigur gegn íslenska ríkinu sem þeir stefndu vegna vangoldinna launa. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem gengið var að öllum kröfum kennaranna.
Kröfur sínar byggðu kennararnir á því að skólinn hefði ekki efnt samkomulag um vinnumat þeirra sem gert hafi verið í framhaldi af kjarasamningi. Skólameistari bar því við að hann hafi ekki haft fjárheimildir til að hækka laun kennaranna. Á þessar röksemdir féllst dómurinn ekki.
Kröfur kennaranna eru í raun lágar og nema á bilinu frá um 120 þúsund krónum upp í um 450.000 krónur. Dómurinn gekk að öllum kröfum kennaranna og þarf ríkið auk þess að greiða málskostnað þeirra upp á rúmlega 1,2 milljónir króna.
Í niðurstöðu dómsins segir meðal annars:
„Að mati dómsins hefur stefndi ekki fært fyrir því haldbær rök að skólameistari hafi ekki haft fjárheimildir til að efna samkomulag sem gert var við stefnendur og aðra
kennara skólans 13. júní 2018. Fyrir liggur að það samkomulag var gert til þess að efna kjarasamning og framfylgja dómi Félagsdóms og hefur stefndi í engu sýnt fram á að skólameistara hafi sem forstöðumanni borið að leita sérstakrar heimildar til að gera samninginn samkvæmt 1. mgr. 14. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál. Þá verður heldur ekki séð að stefnendur hafi á nokkurn hátt verið grandsamar um ætlaðan heimildarskort fyrri skólameistara til að gera samninginn eða að hann hafi látið hjá líða að afla sér heimildar til samningsgerðarinnar, væri þess þörf.“