Blái trefillinn er átaks- og fjáröflunar verkefni hjá Krabbameinsfélaginu Framför, félagi karla með blöðruhálskirtilskrabbamein og aðstandenda, tileiknkað körlum með krabbamein í blöðruhálskirtli.
Hægt er að horfa á þátt átaksi hér að neðan, en þátturinn er einnig sýndur á sjónvarpsstöðinni Hringbraut:
Blái trefillinn
Með því að kaupa nælu Bláa trefilsins ert þú að leggja þitt af mörkum til að þinn maki, afi, bróðir, frændi eða vinur þurfi aldrei að ganga einn með krabbamein í blöðruhálskirtli.
Blái trefilinn er tákn um þá ábyrgð sem við höfum fyrir því að skapa körlum með krabbamein í blöðruhálskirtli, þeirra mökum og aðstandendum bestu lífsgæði.
Þú færð nælu Bláa trefilsins í næsta apóteki, bensínstöð og á www.blaitrefillinn.is