Guðjón Valdimarsson, faðir Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóra, hefur smíðað og selt ólöglega, hálfsjálfvirka riffla, að sögn byssusmiðs. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV.
Húsleit var fyrir skömmu gerð hjá Guðjóni vegna rannsóknar í Hryðjuverkamálinu, svokallaða, þar sem íslenskir karlmenn eru grunaðir um að hafa haft áform um að fremja hryðjuverk hér á landi.
Í fréttatímanum var sýnd byssa af gerðinni AR-15, sem er hríðskotabyssa, hálfsjálfvirkur riffill. Slík skotvopn hafa gjarnan verið notuð í skotárásum í Bandaríkjunum.
Fyrir um ári var karlmaður sakfelldur í Landsrétti fyrir að hafa í fórum sínum slíkan riffil því skotvopnið er ólöglegt hér á landi. Maðurinn bar því við að hann hafi ekki sjálfur breytt vopninu heldur keypt það hálfsjálfvirkt af vopnasala. Sá vopnasali er Guðjón Valdimarsson. Guðjón neitaði fyrir dómi að hafa breytt vopninu.
RÚV greinir frá því að annar byssusmiður hafi svo fengið til sín menn sem keypt höfðu sambærilega riffla af Guðjóni. Byssusmiðurinn breytti byssunum svo þær stæðust lög. Byssusalinn, Agnar Guðjónsson, sagði að viðskiptavinir hans hafi fengið veður af því að vopnin væru ólögleg og fengu Agnar til að breyta þeim svo þau stæðust lög. Furðaði Agnar sig á því að í áðurnefndu dómsmáli hafi hlutur Guðjóns í málinu ekki verið kannaður frekar.
Nánar verður fjallað um málið í Kveik í kvöld, en þar var leitast eftir viðbrögðum Guðjóns sem vildi ekki tjá sig.