Ástæðan er að fólk hefur áhyggjur af að Pútín dragi eitthvað fram úr jakkaerminni á þessum stóra afmælisdegi.
Reuters segir að þess sé vænst að hann ávarpi þing landsins á föstudaginn eða hugsanlega á fimmtudaginn og muni þá formlega lýsa því yfir að Rússland hafi innlimað fjögur úkraínsk héruð í Rússland.
The New European segir að vikum saman hafi fólk í Kreml óttast hvað gerist á föstudaginn. Að Pútín muni hugsanlega koma með einhverja tilkynningu varðandi stríðið.
Jakob Tolstrup hjá Árósaháskóla sérhæfir sig í rannsóknum á rússneskri utanríkispólitík. Í samtali við Ekstra Bladet sagði hann að það sé alls ekki víst að Pútín hafi í hyggju að varpa einhverri sprengju, frekar þvert á móti. „Ég held eiginlega að hann hafi spilað öllum spilunum sínum út fyrir afmælisdaginn sinn. Staða hans hefur veikst og ég held raunar að hann hafi þörf fyrir að beina athyglinni frá sjálfum sér. Pútín hefur alltaf virst vera sterkur maður og afkastamikill leiðtogi en hann er ekki þannig að hann leggi mikla áherslu á persónudýrkun,“ sagði Tolstrup.
Hann sagðist þó ekki reikna með að afmælið gleymist alveg. „Eins og með allt annað þá er mjög erfitt að spá fyrir um hvað Pútín hefur í hyggju. Sérstaklega núna,“ sagði hann og bætti við að Pútín sé óútreiknanlegur, óútreiknanlegri en nokkru sinni áður.