Í Doomsday Watch hlaðvarpinu ræddi Ian Bond, stjórnandi utanríkisstefnu hjá the Center for European Reform, um hvernig hann telur að stríðinu geti lokið
„Ég held að lokamarkmið Pútíns hafi ekki breyst en eins og 2014 held ég að hann sé undir það búinn að horfa til langs tíma og sætta sig tímabundið við millistigsmarkmið ef það er það sem hann getur fengið,“ sagði hann og bætti við að ræða sem Pútín flutti í St Pétursborg fyrir nokkrum mánuðum styðji þessa skoðun.
Þar líkti Pútín sér við Pétur mikla sem barðist við Svía: „Pétur mikli varð að berjast í 21 ár áður en hann sigraði. Ég held að Pútín hafi ekki 21 ár miðað við hversu gamall hann er og sögusagnir um heilsufar hans en mér sýnist að hann sé reiðubúinn til að taka það sem hann getur. Ef hann getur fengið Evrópubúa til að þrýsta á Úkraínumenn um að semja um vopnahlé sem tryggir honum þau svæði sem hann hefur núna, getur hann tekið sér nokkur ár í að endurreisa her sinn, læra af mistökunum og síðan látið til skara skríða á nýjan leik.“