Novaya Gazeta skýrir frá þessu og vitnar í frétt EAN sem hafði eftir Maxim Ivanon, þingmanni á rússneska þinginu, að hann gæti staðfest að þrír hafi látist.
„Einn hinna herkvöddu lést af völdum hjartaáfalls, annar tók eigið líf. Sá þriðji var leystur undan herskyldu og sendur heim þar sem hann lést af völdum skorpulifur,“ sagði hann.
Áður hafði ASTRA fréttastofan skýrt frá sjálfsvígi 46 ára manns í þjálfunarbúðunum. Lík hans fannst í mötuneytinu á laugardaginn.