fbpx
Föstudagur 14.mars 2025
Fréttir

Mun verja tæpu ári í gæsluvarðhaldi fyrir að ráðast á móður sína – „Ég fylgist með þér. Ef þú hreyfir þig þá drep ég þig“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 25. október 2022 12:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 31. mars á næsta ári. Landsréttur féllst á að maðurinn skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli D-liðar 95. gr. laga um meðferð sakamála – en mikið þarf til að heimild samkvæmt þeim lið sé beitt og er það aðeins gert í tilvikum þar sem árás sé mjög líklega eða yfirvofandi. 

Hótaði að drepa móður sína

Lögreglu barst tilkynning í apríl um líkamsárás í Reykjavík. Hinn kærði maður hafði þá veist að móður sinni með ofbeldi, tekið hana ítrekað hálstaki svo hún missti andann, sparkað í bringu hennar og veitt henni högg víðs vegar um líkamann og höfuðið og hótað henni lífláti. Stóð atlagan yfir í um klukkustund og taldi móðirin að þetta væri hennar síðasti dagur.

Maðurinn mun hafa sagt við móður sína. „Ég fylgist með þér. Ef þú hreyfir þig þá drep ég þig. Ég skal drepa þig. Ég hika ekki við að drepa þig“

Hafi móðirin skilið sem svo að hún mætti ekki hringja eftir hjálp. Maðurinn hafi svo hringt í prest sem hafi grunað að ekki væri allt með felldu og tilkynnt málið til lögreglu Móðirin sagði við lögreglu að hún væri viss um að sonur hennar hefði drepið hana ef presturinn hefði ekki gripið inn í aðstæður.

Réttarmeinafræðingur sagði í matsgerð að kyrkingartakið hafi sett móðurina í lífshættulegt ástand.

Foreldrar hans í mikilli hættu

Maðurinn hefur ítrekað sætt nálgunarbanni gagnvart foreldrum sínum og hefur verið ákærður og sakfelldur vegna ofbeldis, hótana og brots gegn nálgunarbanni gegn þeim.

Hefur maðurinn meðal annars verið sakfelldur fyrir  manndrápstilraun fyrir að veitast að föður sínum með hníf. Héraðssaksóknari telur að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt til að verja móður mannsins fyrir frekari árásum.

„Brotaþoli er móðir kærða og í sérstaklega viðkvæmri stöðu gagnvart honum vegna þess. Þá verður ekki litið framhjá því að árásin var bæði alvarleg og ofsafengin. Þá á kærði sögu um ítrekað líkamlegt ofbeldi í garð brotaþola í kerfum lögreglu. Fyrir liggur að nálgunarbann dugar ekki sem skyldi til að verja brotaþola fyrir kærða enda hefur hann ítrekað gerst sekur um brot gegn nálgunarbanni. Þá liggur fyrir að framkvæmt hefur verið áhættumat á kærða og benda niðurstöður matsins til þess að mjög mikil hætta sé á almennri ofbeldishegðun af hálfu varnaraðila og að líklegt sé að hann muni sýna af sér sams konar ofbeldishegðun og hann hafi þegar gert, með töluverðum líkum á stigmögnum í lífshættulegt ofbeldi, eru foreldrar kærða taldir meðal þeirra sem líklegir eru til þess að vera brotaþolar hans.“ 

Mikil hætta á stigmögnun

Samkvæmt geðrannsókn er maðurinn sakhæfur.

Í málinu lá fyrir að maðurinn hafi hlotið tveggja ára óskilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir brot gegn valdstjórninni, kynferðislega áreitni, barnaverndarbrot og meiriháttar líkamsárás, en maðurinn hefur áfrýjað þeim dóm til Landsréttar.

Ákæra var einnig gefin út á hendur manninum í júní fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi eftir að hann veittist eð ofbeldi að móður sinni. Eins hafi honum verið gefin að sök önnur brot. Taldi héraðsdómari sem og Landsréttur að foreldrum mannsins, lögreglu og almennum borgurum stafi mikil hætta á manninu og sé töluverð hætta á að árásir hans muni stigmagnast, en hann hefur verið í gæsluvarhaldi frá því að áðurnefnd árás gegn móður hans átti sér stað í apríl.

Úrskurður Landsréttar í heild sinni

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Verðmætt skuldabréf týndist í Grindavík

Verðmætt skuldabréf týndist í Grindavík
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ósáttur við sekt fyrir að leggja á móti umferð – „Þetta er svo bilaðslega hátt gjald“

Ósáttur við sekt fyrir að leggja á móti umferð – „Þetta er svo bilaðslega hátt gjald“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Trausti sár út í Sönnu – „Mér fannst eins og þú tækir ekki mark á því sem ég væri að segja“

Trausti sár út í Sönnu – „Mér fannst eins og þú tækir ekki mark á því sem ég væri að segja“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Fast sótt að Ásthildi Lóu: „Steininn tekur úr þegar hún lætur svona ummæli falla“

Fast sótt að Ásthildi Lóu: „Steininn tekur úr þegar hún lætur svona ummæli falla“
Fréttir
Í gær

Einn handtekinn til viðbótar vegna morðrannsóknar á Suðurlandi

Einn handtekinn til viðbótar vegna morðrannsóknar á Suðurlandi
Fréttir
Í gær

Árni deilir myndbandi af sænskri matarkörfu sinni – Hvað heldur þú að matarinnkaupin kosti?

Árni deilir myndbandi af sænskri matarkörfu sinni – Hvað heldur þú að matarinnkaupin kosti?
Fréttir
Í gær

Guðmundur Elís fær þriggja ára dóm – Hefur áður verið dæmdur fyrir gróft ofbeldi gegn kærustum og barnsmóður

Guðmundur Elís fær þriggja ára dóm – Hefur áður verið dæmdur fyrir gróft ofbeldi gegn kærustum og barnsmóður
Fréttir
Í gær

Dósasöfnun fótboltadrengja stolið –  „Þetta var mjög sárt fyrir þá, þetta er ekkert smá mikil vinna fyrir svona unga stráka“

Dósasöfnun fótboltadrengja stolið –  „Þetta var mjög sárt fyrir þá, þetta er ekkert smá mikil vinna fyrir svona unga stráka“