fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Fréttir

Strætóbílstjóri hefur fengið nóg – „Hreinlega til háborinnar skammar“

Erla Hlynsdóttir
Miðvikudaginn 19. október 2022 13:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Ingvi Magnússon, vagnstjóri í Reykjavík og nágrenni, segir vagnstjóra hafa fengið nóg af vanrækslu borgaryfirvalda í garð viðskiptavina Strætó og krefjast úrbóta hið snarasta.

Mikill styr stendur um rekstur Strætó. Í gær bárust fréttir af því að næturstrætó hafi verið sleginn af vegna dræmrar nýtingar en á sama tíma greinir fólk frá því að fjöldi farþega hafi ekki getað nýtt næturstrætó því þar var ekki hægt að greiða með greiðslukorti, ekki hægt að greiða með Strætóappinu og ekki með Klapp, rafrænu greiðslukerfi Strætó.

Þá var gjaldskrá Strætó hækkuð um síðustu mánaðamót og ekki hefur enn verið staðið við loforð um að það sé ókeypis fyrir börn.

Aðstöðuleysi farþega

„Mikil afturför hefur orðið undanfarna áratugi í almenningssamgöngum Reykjavíkurborgar hvað viðkemur aðstöðu fyrir farþega strætisvagna í borginni. Hún er hreinlega til háborinnar skammar,“ segir Einar Ingvi í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

„Ég man þá tíð þegar biðstöðvar voru starfræktar á Lækjartorgi, Hlemmi og í Mjódd. Þar inni var upphituð aðstaða fyrir farþega til að ylja sér fyrir veðri og vindum, biðsalur með bekkjum, aðgengi að salerni, sjoppa og miðasala. Þótt ýmislegt mætti betur gera til lagfæringar á leiðakerfi strætisvagnanna og lítið samráð haft við vagnstjóra í því sambandi er enn hörmulegra að þurfa að horfa upp á aðstöðuleysi farþega í Reykjavíkurborg. Þjónustubiðskýlum hefur verið lokað og þau tekin undir aðra starfsemi og farþegar híma úti hvar sem skjól er að finna.“

Skammarleg framkoma

Einari Ingva er nóg boðið. „Framkoma borgaryfirvalda við hinn almenna borgara sem nota þarf strætisvagnana er skammarleg og hefur aldrei verið jafn bagaleg í sögu almenningssamgangna í Reykjavík eins og staðan er í dag. Við vagnstjórar, sem viljum farþegum okkar vel, krefjumst betri aðstöðu fyrir viðskiptavini okkar. Það erum við, vagnstjórar, sem heyrum óánægjuraddir fólksins sem við mætum á hverjum degi og sárt að þurfa að tjá farþegum að það sé ekki í höndum okkar að breyta einu né neinu. Við höfum horft nógu lengi upp á skammarlega framkomu borgaryfirvalda gagnvart farþegum,“ segir hann.

Ein af hugmyndum Einars Ingva til að bæta þjónustuna er að opna gömlu biðskýlin og þjónustumiðstöðvarnar „með tilheyrandi þjónustu og umhyggju gagnvart farþegum almenningsvagna Reykjavíkur. Farþegar hafa nógu lengi þurft að standa úti í kuldanum og eiga betra skilið af borgaryfirvöldum. Vagnstjórar hafa fengið nóg af vanrækslu borgarinnar í garð viðskiptavina sinna og krefjast úrbóta hið fyrsta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð
Fréttir
Í gær

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Solaris fordæma ummæli Helga

Solaris fordæma ummæli Helga
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Leiðrétting og afsökunarbeiðni

Leiðrétting og afsökunarbeiðni