fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Fréttir

Hafnarfjarðarbær um eineltismálið: Segja að um alvarlega árás sé að ræða

Erla Hlynsdóttir
Miðvikudaginn 19. október 2022 15:36

Frá Hafnarfirði. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 Frásögn móður tólf ára stúlku  í Hafnarfirði sem lögð er í hrottalegt einelti hefur vakið mikla athygli. Myndbönd hafa gengið um samfélagsmiðla undanfarnar vikur sem sýna stúlkuna beitta líkamlegu ofbeldi af hópi stelpna á svipuðu reki.

Samskiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar segir að sveitarfélagið hafi ekki fengið upplýsingar þess efnis að samnemendur hafi verið í hópi geranda í þeirri alvarlegu árás sem myndbirt hefur verið í miðlunum. Bæjarfélagið fordæmir einelti og ofbeldi, og ljóst sé að upp sé kominn vandi sem íslenskt samfélag í heild þurfi að bregðast við.

Móðir stúlkunnar, Sædís Hrönn Samúelsdóttir, steig fram á samfélagsmiðlum um helgina og greindi frá því að dóttir hennar sé beitt hrottalegu einelti af hópi um 30 krakka. Þessi hópur hafi meðal annars hótað að beita dóttur hennar ofbeldi, hvatt hana til að taka eigið líf, uppnefnt hana og svo ráðist á hana.

Sjá einnig: Tólf ára stúlka á spítala eftir sjálfsvígstilraun í kjölfar hrottalegs eineltis og ofbeldis: „Þetta er bara nánast eins og morðtilraun“

Sædís Hrönn var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hún greindi frá því að dóttir hennar væri nú á sjúkrahúsi eftir að hafa reynt að taka eigið líf.

Hún segir að ástandið hafi verið mjög slæmt í rúmt ár. Svo hafi krakkarnir byrjað að beita hana líkamlegu ofbeldi núna í haust. Þá segir hún skólann lítið hafa gert í málinu.  Sædís Hrönn segir að bæði sé um að ræða samnemendur í Hraunvallaskóla og krakka úr öðrum skólum.

Fordæma allt ofbeldi og einelti

Ekki náðist í skólastjóra Hraunvallaskóla vegna málsins og á skiptiborði skólans var vísað á samskiptastjóra Hafnarfjarðarbæjar, Árdísi Ármannsdóttur.

Í skriflegu svari frá bæjarfélaginu er farið yfir það ferli sem fer í gang þegar „óæskileg hegðun eða vandamál“ koma upp.

Hafnarfjarðarbær fordæmir allt ofbeldi og einelti. Öll mál eru tekin alvarlega og um leið og eitthvað bendir til þess að óæskileg hegðun eða vandamál séu til staðar grípa skólayfirvöld inn í og setja mál í forgang og ferli. Í samráði og samtali við foreldra/forsjáraðila eru kallaðir til ráðgjafar og sérfræðingar frá ólíkum sviðum háð eðli hvers máls; skólafélagsráðgjafar, námsráðgjafar, sálfræðingar, þroskaþjálfar, barnalæknar og þau úrræði og þjónusta virkjuð sem við á í hverju tilfelli. Þegar við á er barnavernd strax fengin að borðinu.

Lögregla og sveitarfélag vinna náið saman í öllum málum og reglubundið eru haldnir fundir þar sem farið er yfir eðli mála, þróun og tölur. Umræða og vaxandi áhyggjur vegna ofbeldis- og áhættuhegðunar heilt yfir í íslensku samfélagi skilaði sér í eflingu samstarfshóps innan sveitarfélagsins í upphafi árs 2022 sem í sitja fulltrúi lögreglu, fulltrúi barnaverndar, fulltrúi Brúarinnar, sálfræðingur og fagstjóri frístundastarfs og forvarna. Fagfólk sem vinnur þvert á stofnanir að málefnum barna og ungmenna og kallar til aðra fagaðila eftir því sem við á. Þar er þróun mála rædd og þær breytingar sem virðast vera að eiga sér stað í samfélaginu gagngert til að fyrirbyggja með fræðslu og forvörnum. Samfélagið og starfsfólk bæjarins sem vinnur með börnum og ungmennum er á tánum og meðvitað um mikilvægi tilkynninga og snemmtækrar íhlutunar. Tilkynning til barnaverndar er ekki kæra heldur fremur beiðni um aðstoð fyrir viðkomandi barn og/eða fjölskyldu.

Átakanleg þróun

Þá er tiltekið að forsvarsmenn bæjarfélagsins muni ekki tjá sig sérstaklega um þetta einstaka mál heldur aðeins almennt um ferli og viðbrögð þegar upp koma alvarlegt mál.

Þá segir ennfremur í svari frá bænum:

Í ljósi umræðunnar um þetta einstaka mál þá er rétt að árétta sérstaklega að sveitarfélagið hefur ekki fengið upplýsingar þess efnis að samnemendur hafi verið í hópi geranda í þeirri alvarlegu árás sem myndbirt hefur verið í miðlunum. Þessi átakanlega þróun virðist vera landlæg og upp kominn vandi sem íslenskt samfélag í heild þarf að bregðast við.

___________________

Ef þú eða ein­hver sem þú þekkir ert að glíma við sjálfs­vígs­hugsanir að þá er hægt að hafa sam­band við Hjálpar­­síma Rauða krossins, 1717 og í gegnum net­­spjall þeirra. Þar eru þjálfaðir og reynslu­­miklir sjálf­­boða­liðar á öllum aldri sem svara þeim sím­­tölum og spjöllum sem berast. Fullum trúnaði er heitið. Eins er hægt að leita til Píeta samtakanna í síma 552 2218 eða á bráðamóttöku geðsviðs Landspítalans í síma 543 4050.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð
Fréttir
Í gær

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Solaris fordæma ummæli Helga

Solaris fordæma ummæli Helga
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Leiðrétting og afsökunarbeiðni

Leiðrétting og afsökunarbeiðni