Að undanförnu hafa sífellt fleiri sögur komið fram um að þeir sem hafa verið kallaðir í herinn hafi verið sendir til Úkraínu eftir að hafa lokið lágmarksþjálfun og með gömul vopn. Sumir hafa einnig þurft að kaupa sér skotheld vesti sjálfir.
Á föstudaginn sagði Vladímír Pútín, forseti, að herkvaðningunni ljúki á næstu tveimur vikum og þá verði búið að kalla 300.000 menn til herþjónustu. Hann sagði einnig að 16.000 af þessum mönnum væru þegar farnir til Úkraínu.
Á sama tíma hafa mörg hundruð þúsund Rússar flúið land til að komast hjá herkvaðningu og aðrir, sem ekki komust á brott, hafa deilt hryllingssögum á samfélagsmiðlum af því sem þeir hafa upplifað á vígstöðvunum.
Ein þeirra frásagna sem hefur vakið mesta athygli kom frá Natalya Loseva, ritstjóra hjá Russia Today, sem er fjölmiðill sem er mjög hallur undir ráðamenn í Kreml. Á Telegram sagði hún að vinur hennar, hinn 28 ára Aleksej Matrenov, sem bjó í Moskvu og starfaði sem skrifstofustjóri hafi verið neyddur í herinn þann 23. september. Hann hafði ekki neina bardagareynslu. Nokkrum dögum síðar var hann sendur í fremstu víglínu þar sem hann féll 17 dögum síðar. „Herforingjar, hættið að ljúga. Þetta er glæpsamlegt,“ skrifaði Loseva.
Önnur athyglisverð frásögn kom frá Arten Kovrignykh, tvítugum fyrrum starfsmanni McDonald‘s. Hann var kvaddur í herinn og hefur birt upptökur frá þjálfunarbúðum í Belgorod. Washington Post segir að hann hafi í samtali við óháða rússneska miðilinn ASTRA sagt að skömmu eftir komuna þangað hafi ofursti sagt herdeild hans að förinni væri heitið til Úkraínu næsta dag.
Á upptökunum sjást Kovrignykh og fleiri herkvaddir menn ræða þetta við yfirmenn sína og segja þeim að þeir séu ekki tilbúnir, hafi ekki fengið einkennisbúninga, hjálma eða skotheld vesti.
Hann sagði ASTRA að hermennirnir í deildinni hans hafi fengið sumareinkennisfatnað, bakpoka, litla hitabrúsa, skeið, bolla og vopn frá áttunda og níunda áratugnum. Ekki var nóg af skotheldum vestum og hjálmum handa öllum.