Elon Musk, auðkýfingur, hefur ýjað að því að hann ætli ekki lengur að leggja Úkraínumönnum til Internettengingu í gengum Starlink gervihnöttinn, að minnsta kosti ekki ókeypis og hefur hann beðið bandaríska varnarmálaráðuneytið að taka við keflinu.
Hann gaf þetta til kynna á Twitter eftir að úkraínskur sendiherra var dónalegur við hann og sagði honum að „fokka sér“ en Musk sagðist aðeins þá vera að fylgja eftir ráðleggingum sendiherrans.
We’re just following his recommendation 🤷♂️
— Elon Musk (@elonmusk) October 14, 2022
Þetta kemur í beinu framhaldi af harðri gagnrýni Úkraínumanna á Musk fyrir umdeilda tillögu sem hann lagði fram á Twitter um möguleikana á friði, en í tillögu hans fólst að Úkraínumenn ættu að fallast á kröfur Rússa um að gefa eftir mikið landsvæði, þar á meðal Krímskagann sem Rússland innlimaði árið 2014.
Starlink hefur reynst Úkraínuher gífurlega mikilvægur. CNN greinir frá því að SpaceX, fyrirtæki Musk sem sér um Starlink, hafi formlega óskað eftir því að bandaríska varnarmálaráðuneytið, Pentagon, að byrja að greiða fyrir notkun Úkraínu á Starlink sem gætu kostað allt tugi milljóna Bandaríkjadala fyrir hvern mánuð.
„Við erum ekki í stöðu til að gefa fleiri aðgangsþjóna til Úkraínu eða til að kosta til þá þjóna sem þegar hefur verið komið upp til ótilgreinds tíma,“ á Musk að hafa sagt við Pentagon.
„SpaceX horfir fram á erfiða ákvörðun hér. Ég held að þau hafi ekki bolmagnið til að kosta til frekari aðgangsþjóna eða þjónustu sem hersforinginn Zaluzhniy hefur óskað eftir,“ sagði ráðgjafi.
Hins vegar má deila hvort að ákvörðun Musk að hætta að kosta til Starlink-kerfið í Úkraínu hafi nokkuð að gera með þá gagnrýni sem yfir hann hefur rignt undanfarna daga. CNN greinir frá því að Musk hafi leitað til Pentagon í síðasta mánuði.
Hins vegar hefur Úkraínuher greint frá miklum vandræðum með nettenginguna á vissum svæðum, þá einkum á svæðum sem Rússar hafa hernumið eða innlimað. Þetta hafi gífurlega alvarlega afleiðingar en netið sé notað sem samskiptamáti innan hersins.
Úkraínumaðurinn Dimko Zhluktenko hefur birt athugasemdir við yfirlýsingar Musk um hvað Starlink kosti og bent þar á að Úkraínumenn hafi sjálfir borgað fyrir hverja og eina tengingu alveg eins og aðrir Evrópubúar gera.
4. I have bought over 50 StarLinks, with official prices right from the website in EU countries – Poland, CZ, Germany – like 400-500 bucks each, then enable portability for extra IIRC 50$, then payed monthly fee of 60$ (was 120$ before).
It’s the same for everyone else in EU.
— Dimko Zhluktenko 🇺🇦 (@dim0kq) October 14, 2022