Á upptökunni heyrist Solovyov, sem er harður stuðningsmaður Pútíns, segja að það verði „aldrei“ stríð á milli Rússlands og Úkraínu. „Ég orða það svona – það verður aldrei stríð á milli Rússlands og Úkraínu af því að sérhver sá sem reynir af fullri alvöru að leggja út í slíkt stríð er glæpamaður.“
„Það sem meira er, ég get ekki ímyndað mér meiri glæpamann,“ bætti hann síðan við.
Solovyov, sem krafðist nýlega harðra stalínískra aðgerða gegn Úkraínumönnum sem eiga að „steypa Úkraínu niður í dökka tíma“ lýsir síðan Úkraínubúum sem „bræðrum Rússa í anda, blóði og sögulega séð“ og bætir síðan við að stríð við Úkraínu „væri versti glæpurinn sem hægt er að hugsa sér“.
„Við verðum bara að gera lífið i landinu okkar svo aðlaðandi að Úkraínumenn, Hvítrússar, Moldóvar, Armenar og Georgíumenn vilja lifa í sátt og samlyndi við okkur og koma til okkar,“ segir hann einnig á upptökunni.
Fascinating video: chief Kremlin propagandist Vladimir Solovyov explains to a 2008 Moscow theatre audience why war between Russia and Ukraine would be the greatest crime imaginable pic.twitter.com/15HngdYhs9
— Business Ukraine mag (@Biz_Ukraine_Mag) October 12, 2022