Sky News skýrir frá þessu og segir að forsetinn hafi sagt að endurreisnarstarfið eftir árásirnar gangi hratt og vel. Ef ekki hefði komið til árása Rússa í gær hefði verið búið að koma orkuflutningum, vatnsflutningum og fjarskiptum aftur í samt lag.
Hann sagði að árásirnar í gær seinki endurreisninni „örlítið“.