fbpx
Sunnudagur 24.nóvember 2024
Fréttir

„Má ég vera feitur?“ spyr Sveinn

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 12. október 2022 16:31

Sveinn Waage - Mynd: Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ef það er einhver aðkallandi umræða sem erfitt reynist að tækla þá er það slagurinn um offituna.“

Svona hefst pistill sem Sveinn Waage, markaðsstjóri og fyrirlesari, skrifar en pistillinn birtist á Vísi í dag undir yfirskriftinni: „Má ég vera feitur?“

Í pistlinum fer Sveinn yfir umræðuna um ofþyngd, fordómana og heilsufarsvandamálin sem fylgja henni. Sveinn segist sjálfur hafa barist lengi við ofþyngd og að hann sé ennþá að því. „Náði býsna langt upp í þyngd rétt eftir aldamótin, en hef síðan þrammað á línu yfirþyngdar og offitu samkvæmt BMI. Reyndar hefur árans BMI stuðullinn undanfarin ár sett mig við dauðans dyr jafnvel í gallabuxum 36 í mittið.“

„BMI er jú ekki allra,“ segir hann í pistlinum en BMI er skammstöfun fyrir body mass index. Um er að ræða líkamsþyngdarstuðul sem er fenginn með því að deila þyngd fólks með hæð þeirra í öðru veldi. Stuðullinn hefur verið mikið gagnrýndur á undanförnum árum þar sem hann getur gefið skakka og óraunsæja mynd af heilsufari fólks. Til að mynda getur vöðvamikið fólk verið sett í offitudálkinn samkvæmt stuðlinum sökum þyngdar.

Sveinn segir að þrátt fyrir það hversu góður stuðullinn er þá sé það ófrávíkjanleg staðreynd að líkamleg og andleg heilsa hans batnar og versnar eftir magni af aukakílóum sem hann er að „burðast með“ yfir daginn.

„Ef þau eru 20 þá eru það 10 mjólkurfernur í hvorri hendi allan daginn, alltaf. Þá er bakið í drasli, hné og mjaðmir að kvarta, úthaldið ekkert, svefninn í tjóni og HVERNIG getur þá andlega hliðin verið sterk? Sleppum útlitinu í þessu því það er afstætt. Þéttur Sveinn og léttur Sveinn kann að höfða mismunandi til fólks. En munurinn á þéttum og léttum heilsufarslega er sláandi mikill. Geri því ráð fyrir að sá léttari sé vinsælli hjá mínum nánustu.“

„Tilfinningar sem trompa staðreyndir?“

Sveinn furðar sig þá á því hvernig umræðan verður þegar staðreyndir um offitu er ræddar. Það virðist engu máli skipta hversu ókleift fjall staðreynda um skaðsemi offitu verður, „aðgát skal höfð“ með tilheyrandi ákúrum á sendiboðana toppar fjallið nánast alltaf. „Orð hans/hennar eru uppfull af fordómum, fáfræði og fyrirlitningu“ er gusan sem allflestir aðilar lærðir sem ólærðir fá yfir sig,“ segir hann.

„Við þurfum varla að tiltaka dæmi hér. Pavlov hefði lagt frá sér bjölluna og hundana í rannsóknum sínum á klassískri skilyrðingu ef hann hefði upplifað hvernig umræða um offitu triggerar sömu viðbrögðin hjá sama fólkinu. Ding Dong og hundurinn slefar. Ding Dong og þú ert fáfróður og fyrirlítur feita.“

Þá fullyrðir Sveinn að „offitufaraldurinn“ sé að reynast erfiðasti og dýrasti faraldur þessarar aldar, hann tekur sérstaklega fram að hann sé að telja Covid-19 faraldurinn með. „En sigrar sannleikurinn og vísindin ekki alltaf að lokum? Ekki ef við skoðum stöðu trúarbragða í heiminum? Hringavitleysan í 2000 útgáfum sem stenst enga skoðun, staðreyndir og vísindi heldur áfram að plaga heimsbyggðina og hamla framförum, mannréttindum og sér í lagi kvenréttindum. Það er bara að gerast akkúrat núna,“ segir hann.

„Við höfum því fordæmi í fortíð og nútíð, hvernig staðreyndir meiga sín lítils gagnvart sterkum tilfinningum og hugarfari. Er offitan ekki einmitt soldið þannig í raun? Tilfinningar sem trompa staðreyndir? Alveg eins og klerkarnir í Íran, Talibanar í Afganinstan og Kaþólska kirkjan eru og verða dæmd af sögunni fyrir að verja hræðilegan málstað, eymd og hörmungar, þá má velta fyrir sér hver er ábyrgð þeirra sem tala niður raunverulega hættu offitu? Raunverulegar mannlegar hörmungar. Eins og sann-kristni fornleifafræðingurinn sem fann spítu í fjallshlíð kallar upp „sko örkin hans Nóa var víst til“ kallar annar álíka sannfærandi; „en grannt fólk verður líka veikt“.“

Vill aðskilja líkams-vanvirðingu og læknisfræðilegar staðreyndir

Sveinn segir að BMI sé gallaður kvarði en að meðaltali og sem endurtekin viðmið virki hann til að sýna ógnvænlega þróun án hlutdrægni og tilfinninga. „Þróunin er einmitt ógnvænleg,“ segir hann og spyr hvort hægt sé að ræða þennan alvarlega vágest af þeirri alvöru sem hann á skilið

„Einn af mínum uppáhalds grínistum Ralphie May var meistari í að brjóta niður veggi fordóma og kynþáttahaturs með snilli sinni og víðsýni. Hann dó úr offitu 45 ára árið 2017. Þvílík sóun á hæfileikum. Aðrir frábærir listamenn í mikilli ofþyngd hafa annað hvort náð þyngdinni niður og heilsunni um leið eða dáið langt fyrir aldur fram. Og auðvitað allt venjulegt fólk líka, ekki misskilja.“

Þá segir Sveinn að auðvitað eigi allir að fá að vera alls konar, hvort sem það er í útliti, kynhneigð eða einhverju öðru. „Fordómar eru ömurlegir punktur, hvort sem það er gegn öðrum kynþáttum, kynjum eða feitum. Allt ömurlegt,“ segir hann.

„En, gæti verið ráð að aðskilja líkams-vanvirðingu annars vegar í umræðunni um offitu og læknisfræðilegar staðreyndir hins vegar? Við bara verðum, og vil ég hrósa því heilbrigðisstarfsfólki sem þorir að stíga fram opinberlega og segja sannleikann, þrátt fyrir hættuna að fá fordóma- og/eða gerendastimpil á sig um leið.“

Að lokum ber Sveinn upp spurninguna sem er í titli pistilsins, má hann vera feitur?

„Já, auðvitað en ekki ef ég vil lifa lífinu heilbrigðari, líða betur á sál og líkama. Svarið fyrir mig og mína nánustu er því nei.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stríðið milli Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna heldur áfram

Stríðið milli Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna heldur áfram
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Davíð tjáir sig harkalega um VMA-málið – „Allt einhver fullkomin þvæla frá einstaklingi sem var ekki á staðnum“

Sigmundur Davíð tjáir sig harkalega um VMA-málið – „Allt einhver fullkomin þvæla frá einstaklingi sem var ekki á staðnum“