Hann sagði þetta á fundi í Prag í Tékklandi. Meðal vopnanna verða fleiri stórskotaliðsbyssur. Macron sagði að verið væri að vinna úr nokkrum beiðnum Úkraínumanna um ákveðin vopn, þar á meðal stórskotaliðsbyssur.
Í síðustu viku tilkynntu Rússar um innlimun fjögurra úkraínskra héraða í Rússland, eða um 15% Úkraínu. Síðan þá hafa hrakfarir þeirra á vígvellinum haldið áfram og Úkraínumenn hafa sótt fram víða á hernumdu svæðunum.