Á Fréttavakt kvöldsins segjum við frá því að nemendum er vikið úr menntaskóla fyrir að neyta nikótíns en ekki fyrir að fremja meint kynferðisbrot. Þetta fullyrða nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð gengu út úr tíma í dag og fjöldi nema úr öðrum skólum kom á mótmælafund.
Mikilvægur leiðtogafundur 44 Evrópuríkja var haldinn í Prag í Tékklandi í dag til að ræða öryggis-, orku- og efnahagsmál í álfunni vegna Úkraínustríðsins. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sótti fundinn fyrir Íslands hönd og við heyrum í henni.
Fyrrverandi lögreglumaður framdi fjöldamorð þegar hann réðst inn í leikskóla á Tælandi. Hann var 24 börnum og 11 fullorðnum að banað áður en hann banaði sjálfum sér.
Landssöfnun Rauða krossins, Mannvinir, fer fram annað kvöld en formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn segir mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að ein af fjáröflunarleiðum Rauða krossins sé rekstur spilakassa.
Það er menningarmunur á milli þeirra sem heyra og þeirra sem nota táknmál, segja aðstandendur sýningarinnar Eyju, sem nú er verið að æfa í Þjóðleikhúsinu.