Í gær var tilkynnt að á suðurvígstöðvunum hefði úkraínska hernum tekist að rjúfa varnarlínur Rússa og frelsa bæi og þorp úr klóm Rússa. Vladimir Saldo, sem er leiðtogi Rússa á hernumdu svæðunum í Kherson, sagði í samtali við rússneska ríkissjónvarpsstöð að Úkraínumenn hefðu rofið varnarlínurnar og sótt fram. Hann nefndi meðal annars að þeir hefðu náð Dudchany, sem er við ána Dnipro, á sitt vald.
Úkraínski herinn segir að hann hafi einnig náð Zolota Balka, sem einnig er við Dnipro, úr klóm Rússa.
Meira að segja talsmaður rússneska varnarmálaráðuneytisins tjáði sig um þetta og sagði að Úkraínumönnum hafi tekist að rjúfa varnarlínur Rússa og sækja langt fram. Þetta hafi þeir getað vegna yfirburða þeirra hvað varðar fjölda skriðdreka. Hann sagði einnig að sóknin hafi reynst úkraínska hernum dýrkeypt og hafi hann orðið fyrir miklu mannfalli.
Úkraínumönnum liggur mikið á að ná eins miklu landi úr klóm Rússa og þeir geta fyrir veturinn og áður en nýir rússneskir hermenn, sem hafa verið kvaddir í herinn að undanförnu, koma á vígvöllinn.
Þeir vita vel að 300.000 rússneskir karlmenn hafa verið kvaddir til herþjónustu og því vilja þeir ná eins miklu landi á sitt vald og hægt er áður en þeir koma á vígvöllinn. Einnig er mikilvægt að vera búinn að koma upp góðum varnarlínum fyrir haustið og veturinn, til dæmis við hæðir eða ár.