En margir þeirra sem tilheyra hinni pólitísku elítu í Moskvu eru hræddir vegna þróunar mála í Úkraínu og vegna þess að svo virðist sem engin eiginleg áætlun sé til staðar hjá rússneskum stjórnvöldum um framhaldið.
The Guardian skýrir frá þessu og hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni í Moskvu, sem er sagður vel upplýstur um hina pólitísku stöðu, að enginn viti hvað á að gerast næst. Svo virðist sem enginn áætlun sé til staðar. „Ef eitthvað virkar ekki, þá reynum við bara eitthvað annað. Enginn veit hvert þetta leiðir. Ákvarðanirnar eru teknar af einum manni,“ sagði hann.
Pútín flutti 37 mínútna langa ræðu á föstudaginn. Þar ræddi hann aðallega um hrun Sovétríkjanna og notkun kjarnorkuvopna og beindi einnig spjótum sínum hvað eftir annað að Vesturlöndum. En hann nefndi ekki hvað á að gerast í framhaldi af „innlimun“ héraðanna fjögurra eða í hernaðinu í Úkraínu.
Til dæmis sagði hann ekkert um hvort Rússar ætli aðeins að innlima þau svæði sem eru nú undir rússneskum yfirráðum. Talsmaður hans, Dmitry Peskov, gat ekki svarað þessu á föstudaginn og sagði aðeins að það muni skýrast síðar.