fbpx
Fimmtudagur 20.mars 2025
Fréttir

Rúmlega sjötugur Borgnesingur ákærður fyrir hrottalegt heimilisofbeldi og húsbrot

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 2. október 2022 07:00

Frá Borgarnesi. Mynd: Pjetur Sigurðsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 14. október næstkomandi verður aðalmeðferð við Héraðsdóm Vesturlands í máli gegn 71 árs gömlum Borgnesingi sem sakaður er um ofbeldi. Um tvö meint tilvik er að ræða. Maðurinn er annars vegar sakaður um að hafa þann 18. desember árið 2020 ráðist að þáverandi eiginkonu sinni og „slegið hana ítrekað í báða handleggi, og með þessu ógnað lífi, heilsu og velferð hennar, með þeim afleiðingum að hún hlaut bólgu og roða í húð frá olnboga hægri handar og upp að öxl utanvert og eymsli niður í framhand­legg“ (segir orðrétt í ákæru). Þetta atvik átti sér stað í Borgarnesi.

Hins vegar er maðurinn sakaður um að hafa brotist inn á heimili konunnar í Hafnarfirði þann 31. ágúst árið 2021 og misþyrmt henni. Er því atviki lýst þannig í ákæru Lögreglustjórans á Vesturlandi:

„Húsbrot og brot í nánu sambandi, með því að hafa að kvöldi þriðjudagsins 31. ágúst 2021 ruðst í heimildarleysi inn í íbúð fyrrverandi eiginkonu sinnar xxxxx, kt. xxxxxxx, að xxxxxx í Hafnarfirði, veist að xxxxx, tekið í hana og farið með hana inn í svefnherbergi, sparkað í fætur hennar, slegið hana ítrekað í hægri öxl og í andlit, hótað henni lífláti og tekið af henni síma svo hún gæti ekki hringt til lögreglu, og með þessu ógnað lífi, heilsu og velferð hennar, allt með þeim afleiðingum að hún hlaut mar ofarlega á vinstri öxl, mar á vinstri upphandlegg og blett á innanverðum hand­legg, eymslablett á vinstri olnboga, bólgu á hægri úlnlið, bólgu ofarlega á herðablaði, eymsli undir hnéskel á hægra hné, eymsli í hnakka, kúlu á höfði, áverka á munni og nokkra bólgu á innanverðri neðri vör.“

Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Konan gerir síða miskabótakröfu að fjárhæð tvær milljónir króna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Stór truflun hjá Landsneti eftir að Norðurál sló út – Rafmagnslaust varð á Vestfjörðum og hluta Austurlands

Stór truflun hjá Landsneti eftir að Norðurál sló út – Rafmagnslaust varð á Vestfjörðum og hluta Austurlands
Fréttir
Í gær

Ný tíðindi af „græna gímaldinu“ – Segja kjötvinnsluna eiga ekki að þurfa að fara í umhverfismat

Ný tíðindi af „græna gímaldinu“ – Segja kjötvinnsluna eiga ekki að þurfa að fara í umhverfismat
Fréttir
Í gær

Vilja koma í veg fyrir að hörmungarnar í október endurtaki sig

Vilja koma í veg fyrir að hörmungarnar í október endurtaki sig
Fréttir
Í gær

Ísraelsmenn létu eldflaugunum rigna yfir Gaza – Mörg hundruð sagðir látnir

Ísraelsmenn létu eldflaugunum rigna yfir Gaza – Mörg hundruð sagðir látnir