Vítalía Lazareva vekur athygli á því að hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson birti mynd af henni hjá sér á Facebook Story. Vítalíu finnst þetta sérlega óhugnanlegt og deilir þessu á Twitter með upphrópuninni: „HJÁLP!“
Þar segir hún ennfremur: „Það er ekkert spes að lögfræðingur sem ég þekki ekki baun í bala taki mynd af þér þegar ég er að labba inn á fund að hitta minn lögmann. Það sem er ennþá meira spes er að hann póstar myndinni á Facebookið sitt.“
Edda Falak, aktívisti og umsjónarkona hlaðvarpsins Eigin Konur, deilir færslu Vítalíu og segir: „Ágætt að fólk fái að vita hvað þeir sem gengu og ganga langt í að hræða og ógna þolendum frá því að koma fram.“
Sem kunnugt er sagði Vítalía frá því í þættinum Eigin Konur á dögunum hvernig fyrrverandi ástmaður hennar og fjórir aðrir þjóðþekktir menn hefðu brotið á henni kynferðislega. Allir þessir menn eru nú ýmist í leyfi eða hefur verði sagt upp.
Sigurður G., sem yfirleitt er einfaldlega kallaður Siggi G., hefur verið áberandi í metoo-umræðunni og sérstaklega varðandi rétt þeirra sem eru áskaður um kynferðisbrot á samfélagsmiðlum. Að sama skapi hefur hann verið sakaður um, af baráttufólki eins og Eddu Falak og meðlimum Öfga, að berjast gegn kynferðisofbeldi og vilja að gerendur sæti ábyrgð.
Færsla Vítalíu hefur fengið gríðarleg viðbrögð. Sigurður G. Er meðal annars kallaður sjúkur og Vítalía hvött til að kvarta undan honum til Lögmannafélags Íslands.
Það er ekkert spes að lögfræðingur sem ég þekki ekki baun í bala taki mynd af mér þegar ég er að labba inn á fund að hitta minn lögmann ….
Það sem er ennþá meira spes er að hann póstar myndinni á Facebookið sitt.
HJÁLP pic.twitter.com/y8tsWwVrkK
— Vitalia Lazareva (@LazarevaVitalia) January 21, 2022
Ágætt að fólk fái að vita hvað þeir gengu og ganga langt í að hræða og ógna þolendum frá því að koma fram. https://t.co/PX6QZkuu8D
— Edda Falak (@eddafalak) January 21, 2022
Sigurður G. hefur ekki svarað fyrirspurn DV vegna málsins.
Viðbót kl. 14:02. Sigurður G. segir bæði samtali við Mbl.is og Visir.is að hann kannist ekki við að hafa sett myndina af Vítalíu inn á Facebook hjá sér, sé búinn að taka hana út og ætli að láta skoða símann sinn og tölvu.