Norðmenn hafa verið gagnrýndir á alþjóðavettvangi fyrir að hagnast á stríðinu í Úkraínu en hærra verð á olíu og gasi skilar þeim auknum tekjum.
„Það er „siðferðilega rangt“ af Noregi að hagnast á verðhækkunum sem eru að miklu leyti knúnar áfram af deilunni við Rússland vegna stríðsins í Úkraínu,“ segir Rasmus Hansson, sem er þingmaður Græningja.
Í viðtali við Politico sagði hann að Norðmenn séu skammsýnir og sjálfselskir. „Við fáum óvænt meira en við áttum von á, þetta eru miklir peningar, en spurningin er hvort peningarnir tilheyri okkur, á meðan augljósasta ástæðan fyrir verðhækkunum og auknum tekjum eru þær hörmungar sem dynja á úkraínsku þjóðinni,“ sagði hann.
Vegna hærra verðs á olíu og gasi verða tekjur norska olíu- og gasiðnaðarins mun hærri á þessu ári en reiknað var með. Það sama gildir um ríkissjóð en reiknað er með að tekjur hans af olíu- og gasiðnaðinum verði sem svarar til 22.000 milljarða íslenskra króna á árin. Það er næstum tvöfalt meira en á síðasta ári að sögn E24.
Hansson sagði þetta vera ósanngjarnt og að þessi aukafjármunir eigi að renna í samstöðusjóð sem notaður verði til endurreisnar Úkraínu að stríðinu loknu.