Páll Steingrímsson, skipstjóri Samherja, hefur nú svarað grein sem Þórður Snær Júlíussonar, ritstjóri Kjarnans, birti á Kjarnanum í morgun.
Sjá einnig: Páll ósáttur – Segir Þóru hafa hvatt „fárveikan einstakling“ til að „senda sér sem mest“
Grein Þórðar er löng og ítarleg en í henni segir hann meðal annars að sú aðför að frjálsri fjölmiðlun sem Samherji hefur staðið fyrir sé ekki réttarríki sæmandi „Um er að ræða aðför að fólki fyrir að vinna vinnuna sína eða nýta stjórnarskrárvarið tjáningarfrelsi sitt. Vegna þess varð fólk skotspónn ofsókna alþjóðlegs stórfyrirtækis og fótgönguliða þess, sem að uppistöðu virðist vera fólk með afar lágan siðferðisþröskuld, enga virðingu fyrir samfélagssáttmálanum og litla mannlega reisn.“
Sjá einnig: Þórður Snær hefur afhent Blaðamannafélagi Íslands öll gögn um „Skæruliðadeild Samherja“
Eins og fyrr segir hefur Páll nú svarað Þórði. Ljóst er á skrifum Páls að hann er ekki ánægður með greinina en hann segir í færslunni að Þórður geti ekki sokkið lægra.
„Illskan á sér hins vegar engin takmörk hjá þessum hópi og það að misnota fjölskylduharmleik og veikan einstakling með ekkert sjúkdómsinnsæi er það lágkúrulegasta sem ég veit. Viðkomandi er öryggisvistaður á sjúkrahúsi, hefur verið það undanfarna mánuði og verður áfram. Það gerist ekki af því bara. Þórður Snær, þetta er ljótt! Misnotkun sakborninga á þessum einstakling er ljót!“ segir Páll meðal annars í færslunni.
Páll ítrekar að hann vilji að málið sé rannsakað og upplýst af lögreglu, ekki af sjálfum sér eða Þórði Snæ. „Ég hins vegar hef upplýst lögreglu um atriði sem ég hef komist að og mun hjálpa til eins og óskað er eftir annað en þessir sakborningar sem hafa gert allt til þess að tefja rannsókn málsins. Þórði Snæ mun ég hins vegar svara betur þegar sá tími kemur,“ segir hann.
„Að lokum vil ég segja að ég frábýð mér allar tilraunir þessa hóps til að gera sig að fórnarlömbum og varpa ábyrgð á brotaþola og fárveikan einstakling sem hefur hvorki sjúkdómsinnsæi eða veruleikaskyn. Lægra getur Þórður Snær ekki sokkið.“
Hægt er að lesa færslu Páls í heild sinni hér fyrir neðan: