Vandræðin í kringum leikskólann Sælukot virðast engan enda ætla að taka. Margrét Eymundardóttir, fyrrverandi leikskólastjóri Sælukots, greinir frá því í pistli á Vísi í dag að í síðustu viku hafi hún fengið bréf frá lögmanni vegna ummæla sem hún, María Lea Ævarsdóttir, kvikmyndagerðarkona og móðir, Eva Drífudóttir, innanhúsarkitekt og fyrrverandi starfsmaður, og Kristbjörg Helgadóttir, deildarstjóri og fyrrverandi starfsmaður, létu falla í öðrum pistli sem birtur var á Vísi, þann 7. september síðastliðinn.
„Í bréfi Lilju Margrétar Olsen lögmanns, dagsettu 13. september, 2022 kemur fram að forsvarsmenn leikskólans Sælukots hafi leitað til hennar. Í bréfinu tilkynnir hún mér að ég, Margrét Eymundardóttir, eigi von á því að mér verði stefnt vegna ummæla minna og Maríu Leu Ævarsdóttur, Evu Drífudóttur og Kristbjargar Helgadóttur,“ segir Margrét í upphafi pistilsins.
Margrét segir að í bréfinu sé því hótað að ef hún birti ekki grein með sambærilegum hætti fyrir 21. september næstkomandi, þar sem ummæli hennar, Maríu, Evu og Kristbjargar eru dregin til baka, geti hún búist við málshöfðun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna meiðyrða.
Í bréfi lögfræðingsins er sérstaklega vísað til eftirfarandi ummæla sem voru í greininni sem birtist 7. september:
„Í Reykjavík er starfræktur leikskólinn Sælukot sem er rekinn af sértrúarsöfnuði sem telur um 10 manns á Íslandi. Þessi söfnuður kallast Ananda Marga og hefur í gegnum tíðina verið bendlaður við hryðjuverk víða um heim. Reykjavíkurborg gerir samninga við einkarekna leikskóla sem greiða sér út arð á sama tíma og þeir þiggja fé frá borginni. Stjórnendur leikskólans Sælukots greiddu sér út 41,8 m.kr. í arð árið 2020 á sama tíma og leikskólastarfið var í miklu fjársvelti.“
Margrét fer yfir þessi ummæli í pistlinum sem birtur var í dag en hún telur ekki að nein meiðyrði sé að finna í þeim.
„Er orðið sértrúarsöfnuður meiðandi? Við teljum ekki svo vera. Á vef Árnastofnunar kemur fram að merking orðsins sé: hópur fólks sem hefur sagt skilið við stærra trúfélag. Í útvarpsviðtali á Bylgjunni við Elínu Halldórsdóttur þann 9. september segir hún að Ananda Marga sé ekki trúfélag. Við spyrjum því, hvers vegna kallar hún þá rekstrarstjóra leikskólans nunnu? Í okkar huga er orðið nunna tengt trú. Jafnframt fer fram tilbeiðsla í söng sem börnin taka þátt í innan leikskólans á stofnanda samtakanna Prabhat Ranjan Sarkar (1921–1990, einnig nefndur Sri Sri Anandamurti). Auk þess hangir mynd af honum á vegg leikskólans. Ef það er eitthvert atriði í huga Ananda Marga meðlima að skilgreina Ananda Marga ekki sem trúfélag þá er það skilgreiningaratriði og varla getur talist til meiðyrða þó aðrir leyfi sér að skilgreina samtökin sem trúfélag.“
Þá spyr Margrét hvort það sé meiðandi að taka það fram að Ananda Marga telji aðeins um 10 manns. Hún svarar þeirri spurningu svo í kjölfarið. „Á vef Hagstofu Íslands má lesa að fjöldi meðlima Ananda Marga samtakanna var 12 manns árið 2022. Það vantar tvo upp á okkar tölu og það er okkur ljúft og skylt að biðjast velvirðingar á því. Þó er rétt að taka fram að við skrifuðum smáorðið um fyrir framan 10.“
Margrét segir að þær geri ekki ráð fyrir því að það sé talið til meiðyrða að bendla leikskólann Sælukot við Ananda Marga samtökin. „Það kemur skýrt fram á heimasíðu leikskólans, saelukot.is að hann starfi í nafni Ananda Marga samtakanna. Ef það hefur verið tekið út af heimasíðunni þá höfum við sannanir fyrir því að það hafi staðið þar þegar bréf okkar var ritað.“
Næst spyr Margrét hvort það séu meiðyrði að taka fram að Ananda Marga samtökin hafi í gegnum tíðina verið bendluð við hryðjuverk víða um heim. „Það getur hugsanlega farið fyrir brjóstið á einhverjum en þá er rétt að skoða greinar sem birtast þegar sett er inn orðið Ananda Marga á veraldarvefinn. Þá birtast því miður margar greinar sem við hvetjum alla til að skoða,“ segir hún.
„Við höfum meðal annars í huga ritrýnda grein undir nafninu Ananda Marga and the Use of Force eftir Helen Crovetto. Í greininni kemur fram að maður að nafni Evan Pederick hafi játað að hafa átt aðild að sprenigjutilræði við Hilton hótel í Sydney árið 1978.
Bein tilvitnun: In 1990 a man named Evan Pederick admitted he had planted the Hilton Hotel bomb and surrendered to police.43 Known by the Sanskrit name Om Prakash, Pederick was a Margii at the time of the incident.
Rétt er að ítreka að í nefndri grein okkar, stendur að samtökin eða söfnuðurinn Ananda Marga hafi „í gegnum tíðina verið bendlaður við hryðjuverk víða um heim,“ og við það stöndum við.“
Margrét fer þá yfir þann hluta ummælanna er snúa að fjármálum leikskólans. „Í skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla, kemur fram að Sælukot hafi keypt raðhús að Einarsnesi 8 (sem er í Skerjafirði) árið 2019. Jafnframt hafi Sælukot hagnast um 41,8 m.kr. árið 2020,“ segir hún.
„Það verður að játast að við köllum þennan hagnað arð í greininni en það stafar fyrst og fremst af því að engin okkar er útsmogin í bókhaldsbrellum. Við sjáum ekki að það sé grundvallarmunur á þessu tvennu, arði og hagnaði. Sé svo biðjumst við velvirðingar á því. Hitt stendur óhaggað að leikskólinn er rekinn með verulegum hagnaði sem við sjáum ekki hvert rennur. Reksturinn er í fjársvelti, Reykjavíkurborg styrkir fyrirtækið og enginn veit hvernig hagnaðinum er ráðstafað. Skýrsluna má lesa hér.
Við, fyrrverandi starfsmenn á Sælukoti, stöndum við það, allar sem ein að árið 2020, þegar hagnaðurinn var 41,8 m.kr., hafi leikskólastarfið verið í miklu fjársvelti. Raunar ná kvartanir okkar 6 ár aftur í tímann eins og lesa má um hér.“
Undir lok pistilsins segir Margrét að þær ætli ekki að láta rekstrarstjórann, eða nunnuna eins og hún er kölluð innan veggja skólans, kúga sig. „Við ætlum ekki lengur að láta rekstarstjórann kúga okkur. Hennar vald nær ekki út fyrir veggi leikskólans,“ segir Margrét.
„Ef við réðum yfir jafnmiklu fé og hún myndum við eflaust kæra hana fyrir illa meðferð á starfsfólki og brot í störfum sínum. Við höfum það ekki og látum okkur nægja að skrifa um óréttlætið í blöðin til þess að reyna að vekja almenning til umhugsunar og stjórnvöld, einkum Reykjavíkurborg sem styður þetta starf með fjárframlögum.“
Að lokum segir Margrét að þær vilji ítreka að þær sjái alls enga ástæðu til að draga nein af framangreindum ummælum sínum til baka. Þeim hafi ekki verið bent á neinar forsendur fyrir slíku. „Við teljum eðlilegt að birta þetta bréf með að minnsta kosti sambærilegum hætti og grein okkar frá 7. september síðastliðinn. Þannig getum við sýnt enn betur en áður hvernig þessi „kærleiksríku samtök“ kjósa að starfa.“
Lesa meira:
„Hver þiggur arð upp á 41,8 mkr? Og, hverjir standa á bak við leikskólann?“