Peningar flæða úr ríkissjóði því stríðsrekstur er kostnaðarsamur og refsiaðgerðir Vesturlanda gera hlutina ekki auðveldari. En þar með er ekki öll sagan sögð því Pútín á einnig í erfiðleikum með að verða sér úti um nægilega marga hermenn til að senda á vígvöllinn í Úkraínu.
En einn af gömlu vinum hans hefur nú komið honum til aðstoðar. Þetta er hinn svokallaði kokkur Pútíns.
Þetta er Yevgeny Prigozhin. Hann er áhrifamikill kaupsýslumaður. Hann er maðurinn á bak við hinn svokallaða Wagnerhóp sem eru málaliðar sem rússnesk stjórnvöld nýta sér óspart til skítverka víða um heim.
Prigozhin er sagður einn valdamesti maður Rússlands enda góður vinur Pútíns.
Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War segir að á miðvikudaginn hafi Prigozhin lagt leið sína í rússneskt fangelsi til að reyna að telja fangana á að bjóð sig fram til herþjónustu í Úkraínu.
Hann sagði þeim að rússneskir fangar hafi barist í Úkraínu síðan 1. júlí. Hann hvatti þá til að bjóða sig fram. Hann lofaði þeim sakaruppgjöf í staðinn en þó gegn því skilyrði að þeir verða að berjast í sex mánuði. Hann var heldur ekkert að skafa utan af hlutnum og sagði þeim að ef þeir reyni að flýja áður en þessir sex mánuðir séu liðnir verði þeir skotnir á staðnum.
Fangarnir fá sem svarar til um 600.000 íslenskum krónum á mánuði ef þeir bjóða sig fram og fara til Úkraínu. Pútín hefur gefið út tilskipun um að hámarksaldur sjálfboðaliða í hernum megi nú vera 50 ár en hann var 40 ár áður.
Sumir sérfræðingar telja ekki útilokað að Prigozhin verði næsti varnarmálaráðherra enda hafi hann og Pútín verið nánir vinir í 30 ár. Þeir telja að það geti hentað Pútín vel að losa sig við Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, því með því geti hann varpað ábyrgðinni á slælegu gengi rússneska hersins yfir á hann og þar með létt ábyrgðinni af sjálfum sér.