fbpx
Sunnudagur 09.febrúar 2025
Fréttir

Stella segir að alvarleg teikn séu á lofti og að nú verði að bregðast við

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 15. september 2022 17:00

Stella Samúelsdóttir - Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Stöðugar fréttir af auknu hatri og óþoli í garð hinsegin fólks á Íslandi eru alvarleg teikn á lofti sem bregðast verður við,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, í pistli sem birtur var á Vísi í dag.

Stella nefnir sem dæmi að í morgun hafi verið fjallað um áhyggjur Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar af stöðu hinsegin barna og ungmenna en frásagnir af alvarlegum hótunum og aðkasti innan veggja skóla hefur aukist.

„Mannréttindi eiga undir högg að sækja um allan heim og því gríðarlega mikilvægt að spyrna fótum við þeirri þróun. Eitt mikilvægasta vopnið gegn fordómum og fáfræði er aukin fræðsla, upplýst umræða og samheldni samélagsins um að standa vörð um ákveðin gildi á borð við jafnrétti, frelsi og mannréttindi. Mannréttindi jaðarsettra hópa hafa sjaldnast dottið af himnum ofan, kynslóðir eftir kynslóðir börðust fyrir aukinni viðurkenningu og mannvirðingu. Fyrir skilningi á því að við erum ólík.“

Þá segir Stella að Ísland sé eitt þeirra landa sem hefur sett mannréttindi sem leiðarstef í innanríkis- og utanríkisstefnu sinni og að það ahfi skilað árangri. „Allt frá Vigdísi Finnbogadóttur yfir til Jóhönnu Sigurðardóttur. Konur sem ruddu svo sannarlega brautina á heimsvísu í nafni íslenskrar þjóðar. Táknmyndir um möguleika, sem ég veit að margar þjóðir líta hýru auga að verði að veruleika einn daginn hjá þeim líka.“

Stella segir að þess vegna sé það svo sláandi að lesa fréttir um aukna tíðni hatursorðræðu og glæpa hér á landi í garð hinsegin fólks. „UN Women á Íslandi ákvað að varpa ljósi á stöðu hinsegin fólks á heimsvísu með Fokk ofbeldi herferðinni sem hófst á dögunum með sölu FO vettlinga. Allur ágóði af sölunni mun renna í hinsegin sjóð UN Women sem nú stendur tómur. Við tókum þá ákvörðun að samhliða því að safna fjármunum fyrir fjársveltan sjóð ytra, væri einnig mikilvægt að hreyfa við hlutunum hér heima,“ segir hún.

„Enda hefur umræðan um bakslag verið hávær síðustu mánuði. Við hófum því undirskriftarátak í því skyni að hvetja almenning til að taka skýra afstöðu með réttindum hinsegin fólks og skora á íslensk stjórnvöld að bregðast við því bakslagi í hinsegin baráttunni sem virðist hafa skotið rótum í samfélaginu okkar. Íslensk stjórnvöld bera ábyrgð á því að tryggja að löggjöf sé verndandi fyrir jaðarsetta hópa ásamt því að stuðla að forvirkum aðgerðum í formi fræðslu og upprætingu fordóma. Að sama skapi hvetjum við stjórnvöld til að beita sér á alþjóðavettvangi fyrir því að aðrar þjóðir taki sér Ísland til fyrirmyndar og tryggi lagaleg réttindi hinsegin fólks. Það hefur aldrei verið jafn mikilvægt og núna að Ísland láti mannréttindarödd sína heyrast.“

Að lokum hvetur Stella almenning til að skrifa undir undirskriftarlista UN Women á Íslandi og taka afstöðu með mannréttindum. Með því er verið að skora á íslensk stjórnvöld að bregðast við bakslaginu í hinsegin baráttunni hér á landi, sem og að halda áfram að beita sér í málaflokknum á alþjóðavettvangi.

Stella segir að UN Women á Íslandi muni afhenda Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni mennta- og barnamálaráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Guðmundi Inga Guðbrandssyni félags- og vinnumarkaðsráðherra undirskriftarlistann að söfnun lokinni.

Hægt er skrifa undir hér undirskriftarlistann hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigga Dögg fagnar sigri eftir niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis – „Föstudagur til fjár, baby“

Sigga Dögg fagnar sigri eftir niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis – „Föstudagur til fjár, baby“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ævintýralega löng flugferð frá Tenerife til Akureyrar: Enduðu í Glasgow eftir átta tíma flug – Mikið klappað þegar vélin loksins lenti

Ævintýralega löng flugferð frá Tenerife til Akureyrar: Enduðu í Glasgow eftir átta tíma flug – Mikið klappað þegar vélin loksins lenti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur sneri við dómi úr héraði – Kennari fær skaðabætur eftir að hafa slasast við árás nemanda

Landsréttur sneri við dómi úr héraði – Kennari fær skaðabætur eftir að hafa slasast við árás nemanda
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Svona er Donald Trump sagður ætla að stöðva stríðið í Úkraínu

Svona er Donald Trump sagður ætla að stöðva stríðið í Úkraínu