Þetta segir Volodomyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, að sögn AFP og Reuters. Þessi árangur hefur náðst í norðaustur- og suðurhluta landsins.
Bandarísk yfirvöld telja að Rússar hafi hörfað frá nær öllum þeim svæðum sem þeir höfðu á sínu valdi nærri Kharkiv. Margir af rússnesku hermönnunum hafa yfirgefið Úkraínu og haldið yfir landamærin til Rússlands. Þetta sagði háttsettur bandarískur embættismaður í gærkvöldi.