Einstaklingur var í sumar ákærður fyrir kynferðislega áreitni, og til vara brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlagabrot, fyrir skilaboð sem hann sendi á stúlku í september árið 2020. Stúlkan var þá aðeins 12 ára gömul.
Skilaboðin sem um ræðir voru send úr símanúmeri ákærða. Ákærði er þannig sagður hafa áreitt stúlkuna með kynferðislegu orðbragði sem var til þess fallið að særa blygðunarsemi hennar.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Í einkaréttarkröfu sem foreldri stúlkunnar lagði fram fyrir hönd dóttur sinnar er gerð krafa um 2 milljónir króna, auk vaxta, í miskabætur. Þá er þess einnig krafist að ákærði greiði málskostnað.
Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní en er á dagskrá dómstólins núna í september. Þinghald í málinu er lokað.
Í ákærunni, sem DV hefur undir höndum, má sjá skilaboðin sem ákærði sendi á barnið. Skilaboðin sem eru í ákærunni voru send að kvöldi til mánudaginn 21. september og þriðjudaginn 22. september.
Umrædd skilaboð má sjá hér fyrir neðan:
„Slökkva og halda á þér uppí herbergi og fara sofa hjá þér“
„Uu já ég vil kúra nakin“
„Hehe við skulum þá ríða líka“
„Ég mun taka þig úr buxunum á meðan þú sefur og vara byrja að putta þig og riða þér í rassin“
„Má ég?“