Þetta sagði Anders Puck Nielsen, hernaðarsérfræðingur við danska varnarmálaskólann, í samtali við B.T. um sókn Úkraínumanna í Kherson en þeir hófu gagnsókn þar á mánudag í síðustu viku.
Nielsen sagðist telja að nú þegar sjáist merki um hvernig margra vikna undirbúningur Úkraínumanna, með markvissum sprengjuárásum á birgðalínur Rússa, hafi veikt rússnesku hersveitirnar í Kherson og að hluta einangrað þær.
Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War (ISW) er sömu skoðunar í nýlegu mati á gangi stríðsins. Segir hún að sókn Úkraínumanna hafi veikt birgðaflutninga Rússa mikið. Þetta hafi Úkraínumenn gert með nákvæmum árásum á herstöðvar, birgðageymslur, stjórnstöðvar og mikilvægar flutningsleiðir.
Nielsen sagði að þetta þýði að Úkraínumenn séu með tromp á hendi og það verði sífellt sterkara. Það er tími. Rússar eigi í sífellt meiri erfiðleikum með birgðaflutninga og svo lengi sem Úkraínumenn geti tryggt að Rússar noti meira af búnaði en þeir geta fengið til sín þá veikist staða Rússa.
Úkraínumenn eiga hins vegar ekki í neinum erfiðleikum með að koma birgðum til hersveita sinna að sögn Nielsen. Hann sagði þá vera mjög meðvitaða um að þeir vilji ekki lenda í sömu stöðu og Rússar og nýti sér frekar að tíminn vinni með þeim.