Maðurinn gekk undir nafninu „Östberga-kapteinninn“. Hann var skotinn um klukkan 18.20 síðdegis fimmtudaginn 25. ágúst í Haninge, sem er sunnan við Stokkhólm. Morðinginn lét sig síðan hverfa af vettvangi og hefur ekki náðst.
Þetta var fertugasta og sjöunda morðið, sem framið er með skotvopni, í Svíþjóð á árinu. Allt árið í fyrra voru þau 48.
Sænskir fjölmiðlar segja að maðurinn hafi verið nátengdur átökum glæpagengja en Österberganätverket hefur árum saman átt í átökum við Bredängsnätverket. Þess utan eru innri átök í Österberganätverket sem er klofið í tvær andstæðar fylkingar. Þau átök hafa kostað marga lífið.
Aftonbladet segir að aðalkenning lögreglunnar sé að morðinginn sé úr röðum hinnar fylkingarinnar innan Österberganätverket. Fórnarlambið var ásamt mörgum æskuvinum sínum í annarri fylkingunni. Meðal annarra fórnarlamba úr þeirri fylkingu eru þrír nánir vinir hans, bræður, sem voru myrtir. Fjórði bróðirinn er á lífi en situr í fangelsi.
Hinn látni átti langan sakaferil að baki og segir Aftonbladet að hann hafi verið grunaður um aðild að fjölda alvarlegra mála þar sem hann var sýknaður af dómstólum eða málin felld niður.
Hann var sakfelldur fyrir morðið á leiðtoga Bredängsnätverket sem var myrtur í nóvember 2017. Hann var dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir aðild að morðinu en var sýknaður á æðra dómstigi.
Hann hlaut marga dóma fyrir að vera vopnaður en hann dró enga dul á að hann væri vopnaður til að geta varið sig.