Fáir rússneskir hermenn hafa tjáð sig um stríðið en Filatyev er einn fárra sem hefur þorað því.
The Guardian segir að í bókinni lýsi hann því meðal annars að rússnesku hermennirnir hafi þurft að brjótast inn í úkraínsk eldhús til að verða sér úti um mat: „Við vorum eins og villimenn. Við borðuðum allt sem var þar. Haframjöl, graut, sultu, hunang, kaffi. Okkur var sama um allt. Okkur var ýtt að þolmörkum. Flestir höfðu verið í einn mánuð á vígvellinum án þess að upplifa svo mikið sem vott af þægindum, bað eða venjulegan mat.“
Filatyev, sem var liðsmaður fallhlífahersveita rússneska hersins, hefur nú yfirgefið Rússland og er í felum á ótilgreindum stað.
Í bókinni lýsir hann ruglingslegu upphafi stríðsins þar sem rússnesku hermennirnir hafi verið með lélegan búnað og skort hafi upp á samskipti og upplýsingaflæði. „Það tók mig vikur að skilja að það var alls ekkert stríð á rússnesku landsvæði, að við hefðum ráðist á Úkraínu,“ sagði hann í samtali við The Guardian.
Í bókinni, sem er 141 blaðsíða, er því meðal annars lýst þegar Filatyev og félagar hans hertóku borgina Kherson þar sem þeir lentu í gríðarlegu sprengjuregni. „Á þessum tímapunkti hugsaði ég með mér að það sem við værum að gera þarna væri kjaftæði. Til hvers í fjandanum við værum í þessu stríði? Ég lofaði sjálfum mér og guði að ef ég lifði þetta af myndi ég geta allt sem ég gæti til að stoppa þetta,“ sagði hann í samtali við The Guardian.
Hann segir einnig að búnaður rússneska hersins sé gamall. Til dæmis hafi riffillinn hans verið ryðgaður og ekki í fullkomnu lagi þegar hann fékk hann skömmu fyrir stríðið. Ökutækin voru í lélegu ásigkomulagi og voru hermennirnir því berskjaldaðir fyrir árásum. „Við vorum fullkomið skotmark. Það var óljóst hver áætlunin var og eins og venjulega vissi enginn neitt,“ segir hann í bókinni.