fbpx
Fimmtudagur 27.febrúar 2025
Fréttir

„Við erum brotin og þiggjum alla þá góðu strauma sem þið getið veitt okkur“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 21. ágúst 2022 18:42

Guðmundur Haukur Baldvinsson Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Blönduósbæjar, las upp áhrifamikla  yfirlýsingu fyrir fjölmiðlafólk á vettvangi á Blönduósi  vegna skotárásar sem átti sér stað í bænum í morgun. Sveitastjórinn sagði samfélagið brotið eftir atburðinn og segir íbúa bæjarins og þá sem málinu tengist þyggja stuðning og góða strauma.

Hann greindi frá því að lokaður upplýsingafundur lögreglu með íbúum svæðisins myndi eiga sér stað klukkan átta í kvöld og í kjölfarið yrðið fólki boðið upp á sálrænan stuðning og samveru í Blönduöskirkju.  Þá óskaði sveitarstjórinn eftir því að fjölmiðlar myndu sýna ástandinu í samfélaginu, sem nú sé í sárum og þurfi svigrúm, skilning.

Á vef Fréttablaðsins er hægt að sjá myndbandsupptöku af hinni áhrifamiklu yfirlýsingu.

Yfirlýsingin í heild sinni:

Við í sveitarstjórninni viljum gefa út opinbera tilkynningu vegna þess voflega atburðar sem gerðist á Blönduósi að morgni sunnudags 21. ágúst. Við munum að svo stöddu ekki gefa kost á okkur í opin viðtöl en ég mun hér með lesa sameiginlega yfirlýsingu fyrir hönd allra í samfélaginu.

Íbúar svæðisins eru harmi slegnir og við erum ennþá að vinna úr því að þetta hafi raunverulega gerst.

Hugur allra íbúa Húnabyggðar eru hjá þeim látnu, hlutadeigandi og aðstandendum þeirra sem tengjast þessum hræðilega atburð. Samfélagið er í einhverskonar áfalli og allir eru að reyna að ná utan um þessa atburði og þær tilfinningar sem þeim fylgja. Í litlu samfélagi eins og okkar eru allir kunningjar, vinir og/eða ættingjar og atburður sem þessi ristir samfélagið djúpt.

Lokaður upplýsingafundur lögreglunnar og annara viðbragðsaðila fyrir íbúa svæðisins verður haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 20:00. Að þeim fundi loknum verður boðið upp á sálrænan stuðning og samveru í Blönduöskirkju.

Sveitarstjórn beinir þeirri ósk til fjölmiðla að sýna því skilning að samfélagið er í sárum og þarf svigrúm til að vinna með þær sterku tilfinningar sem fylgja svona áfalli. Rétt er að áretta að allar tæknilegar upplýsingar um málsatvik eru á borði lögreglunnar sem sér um upplýsingagjöf vegna málsins.

Við biðlum til landsmanna allra að standa með okkur á þessum erfiðu tímum, við erum brotin og þiggjum alla þá góðu strauma sem þið getið veitt okkur. Eins óskum við þess að þið hugsið vel til þeirra sem þessum atburði tengjast. Það eru dökk ský yfir okkur núna en með ykkar hjálp komust við í gegnum þetta saman.

Við leggjum áherslu á við alla sem eiga um sárt að binda að Rauði krossinn á Íslandi sinnir fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi og sími þeirra 1717 er opinn allan sólarhringinn.

Með vinsemd og virðingu,

Sveitarstjórn og sveitarstjóri

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ferðamaður á Íslandi fékk afar dularfulla heimsókn – „Hefur einhver upplifað eitthvað svona?“

Ferðamaður á Íslandi fékk afar dularfulla heimsókn – „Hefur einhver upplifað eitthvað svona?“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sjáðu myndbandið sem Trump birti og er að gera allt brjálað

Sjáðu myndbandið sem Trump birti og er að gera allt brjálað
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Kjarasamningar loksins í höfn og verkföllum aflýst

Kjarasamningar loksins í höfn og verkföllum aflýst
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Trump hyggst selja ríkum útlendingum leyfi til að starfa og búa í Bandaríkjunum – Gullkortið mun kosta um 700 milljónir

Trump hyggst selja ríkum útlendingum leyfi til að starfa og búa í Bandaríkjunum – Gullkortið mun kosta um 700 milljónir