Ekki bætir úr skák að svo virðist sem foringjar rússnesku hersveitanna séu flúnir frá vesturbakkanum og hafi skilið undirmenn sína eftir. DV skýrði frá þessu fyrr í morgun.
Anders Puck Nielsen, hernaðarsérfræðingur hjá danska varnarmálaskólanum, sagði í samtali við TV2 að sífellt fleira bendi til að Rússar hafi gengið í gildru í Kherson.
Í júní lýstu Úkraínumenn því yfir að þeir myndu ná Kherson aftur á sitt vald fyrir september og sagði Nielsen að það hafi verið ákveðinn tilgangur með því hjá Úkraínumönnum að skýra frá þessu opinberlega.
„Þetta er eitthvað sem Úkraínumenn hafa sagt aftur og aftur og aftur. Venjulega myndi maður halda svona áætlunum leynilegum en þetta líkist því að ætlunin hafi verið að lokka eins margar rússneskar hersveitir til Kherson og mögulegt væri,“ sagði hann.
Síðan hafi Úkraínumenn getað ráðist á birgðakeðjur Rússa með vestrænum vopnum, ekki síst hinu umtalaða HIMARS-flugskeytakerfi. „Þetta líkist því sífellt meira og meira að Rússar hafi gengið í gildru,“ sagði Nielsen.
Úkraínumenn eiga ekki í erfiðleikum með birgðaflutninga sína því þeir eru nærri eigin herstöðvum og bæir og birgðaleiðir eru nærri úkraínsku hersveitunum. Nielsen sagði að ef Rússar ætli að gera eitthvað þurfi þeir að senda flugvélar á svæðið en það sé erfitt því Úkraínumenn séu farnir að ráða lögum og lofum í lofti.
Spá hans er að á næstu vikum muni allt að 20.000 rússneskir hermenn verða umkringdir og einangraðir á vesturbakka Dnipro vegna árása Úkraínumanna á innviði og birgðaflutningaleiðir þeirra: „Þetta mun þýða að við munum sjá mikinn fjölda rússneskra stríðsfanga, meira mannfall og Rússa sem skilja ökutæki sín eftir eða neyðast til að gefast upp.“
Hann sagði að ef þetta tekst verði það „stórt skref“ fyrir Úkraínumenn og geti skipt sköpum varðandi gang stríðsins.