The Washington Post skýrir frá þessu. Blaðið hefur þetta eftir ónafngreindum heimildarmönnum sem þekkja vel til rannsóknarinnar.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort skjölin tengjast bandarískum kjarnorkuvopnum eða kjarnorkuvopnum annarra ríkja. Sérfræðingar sögðu í samtali við blaðið að áhyggjur væru uppi um að leyniskjöl af þessu tagi geti endað í höndum rangra aðila.
Hvorki dómsmálaráðuneytið eða FBI hafa viljað staðfesta þetta.
Ekki er vitað hvort FBI fann það sem leitað var að heima hjá Trump.
Það var Trump sjálfur sem skýrði frá húsleitinni á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, á mánudaginn. Hann sagði meðal annars að FBI hefði brotist inn í peningaskápinn hans.
Merrick Garland, dómsmálaráðherra, staðfesti á fréttamannafundi í gær að hann hefði samþykkt ákvörðunina um að gera húsleit heima hjá Trump.
Bandarískir fjölmiðlar hafa skýrt frá því að Trump hafi tekið 15 kassa með leyniskjölum með sér úr Hvíta húsinu. Yfirvöld hafa mánuðum saman reynt að fá hann til að afhenda þessa kassa en án árangurs. Það er meðal þessara skjala sem skjöl um kjarnorkuvopn leynast að sögn.