Ráðist var á verðlaunarithöfundinn Salman Rushdie á meðan hann flutti fyrirlestur í New York í dag. Rushdie hefur lengi vel orðið fyrir mikilli andúð meðal heittrúaðra múslima og var hann meira að segja lýstur réttdræpur af æðsta klerk Írans, Ruholla Khomeini, árið 1989.
Fréttamaður AP var á fyrirlestrinum þegar árásin átti sér stað og sagði hann að árásarmaðurinn hafi vegið að honum stuttu eftir að hann gekk á svið og var hann barinn og stunginn ítrekað. Árásarmaðurinn var snúinn niður stuttu seinna. Ekki liggur fyrir hvert ástand Rushdie er.
Rabbíninn Charles Savenor, sem einnig er rithöfundur, var meðal viðstaddra og náði upptöku af atvikinu. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Salman Rushdie reiddi heittrúaða múslima með útgáfu bókarinnar Söngvar Satans sem kom út árið 1988. Hún er meðal annars stranglega bönnuð í Íran vegna túlkun Rushdie á spámanninum Múhammeð.
#SalmanRushdie just attacked onstage at @chq @NBCNews @ABC @cnnbrk pic.twitter.com/I1XT6AmkhK
— Charles Savenor (@CharlieSavenor) August 12, 2022