Tilkynnt var um innbrot í fyrirtæki í vesturhluta borgarinnar og er málið í rannsókn.
Á suðurhluta varðsvæðisins slasaðist reiðhjólamaður og var hann fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku.
Í Kópavogi var brotist inn í hótelherbergi og var gerandinn handtekinn á vettvangi. Hann var vistaður í fangageymslu.
Einn ökumaður var kærður fyrir of hraðan akstur en bifreið hans mældist á 140 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 80 km/klst.