Þessar tölur valda Andreas Nölke, prófessor í stjórnmálafræði við Goethe háskólann í Frankfurt, áhyggjum og það þrátt fyrir að tölurnar fyrir júní sýni að útflutningurinn var meiri en innflutningurinn.
Í samtali við DW sagði hann að ekkert land sé viðkvæmara fyrir alþjóðavæðingunni en Þýskaland. Hann telur að Þýskaland sé hins vegar eitt þeirra landa sem hafi notið mesta ávinningsins af alþjóðavæðingunni. Á síðustu árum hafi spenna á milli Kína og Vesturlanda farið vaxandi, flutningskeðjur á heimsvísu hafi verið í vanda vegna heimsfaraldursins og nú síðast hafi stríð brotist út í Úkraínu. Þetta hafi haft mikil áhrif á margt af því sem velmegun Þýskalands byggist á.
„En nú getur maður séð að tölur tengdar alþjóðavæðingunni falla hægt en bratt. Ég held að Þýskaland sé í vanda,“ sagði hann.
Hann hefur einnig fært rök fyrir því að Þýskaland sé orðið of háð útflutningi og hafi þörf fyrir nýtt efnahagsmódel til að mæta kröfunum frá heimi sem er að breytast.
DW segir að margir hagfræðingar telji að góðar tölur um viðskiptajöfnuðinn í júní byggist á hækkandi verði og mikilli verðbólgu, frekar en að þýskur útflutningur sé við góða heilsu.
Þýskaland er þriðja stærsta útflutningsland heims, það stærsta í Evrópu. Kína og Bandaríkin eru stærstu útflutningslönd heims.