Rússar hafa ekki látið mikið uppi en vitað er að þeir eru að flytja hersveitir og hergögn til suðurhluta Úkraínu þar sem margir reikna með að hörð átök muni geisa næstu vikur og jafnvel mánuði.
En enn er óljóst hversu mikla áherslu ríkin munu leggja á hernað á svæðinu. Jacob Kaarsbo, sérfræðingur hjá hugveitunni Tænketanken Europa og fyrrum sérfræðingur hjá leyniþjónustu danska hersins, sagði í samtali við Ekstra Bladet að margt bendi til að barist verði um Kherson en ekki sé útilokað að um blekkingu sé að ræða.
Bandarískar leyniþjónustustofnanir segja að Rússar séu að undirbúa „sviðsetta þjóðaratkvæðagreiðslu“ í Kherson og Zaporizhzhy, sem eru í suðurhluta Úkraínu, um að svæðin verði hluti af Rússlandi. Rússar fara nú með stjórn á þessum svæðum. Þetta er sama aðferð og þeir beittu þegar þeir innlimuðu Krím 2014. Bandaríkjamenn telja að atkvæðagreiðslan muni hugsanlega fara fram í september. Þetta er ein af ástæðunum fyrir að Úkraínumenn hafa blásið til sóknar á þessu svæði.
Kaarsbo benti á að ef sókn Úkraínumanna beri árangur verði erfiðara fyrir Rússa að innlima svæðin.
Víglínan nær nú frá Kharkiv í norðri til Kherson í suðri. Her Rússa hefur mjakast hægt áfram í sókn sinni í Donbas en á sama tíma hefur sókn Úkraínumanna í Kherson gengið ágætlega. Meðal annars vegna HIMARS flugskeytakerfanna sem Bandaríkin hafa látið þeim í té. Úkraínumenn hafa meðal annars sprengt fjölda skotfærageymsla Rússa og gera þeim erfitt fyrir að halda uppi linnulausri stórskotaliðshríð eins og þeir eru þekktir fyrir að gera.
En það er ekki bara HIMARS sem styður að Úkraínumönnum muni ganga vel í orustunni um suðurhluta landsins. Mikið mannfall rússneska hersins hefur í för með sér að þeir hermenn sem eru sendir í víglínuna verða sífellt verri því þá skortir þjálfun og reynslu.
Í greiningu The Institute for the Study of War segir að undirbúningur Úkraínumanna og fyrstu hernaðaraðgerðir þeirra í Kherson, í bland við dramatíska veikingu rússnesku hersveitanna, virðist gera að verkum að í fyrsta sinn í stríðinu séu það Úkraínumenn sem ráða ferðinni.