Á ellefta tímanum reyndi kona að leysa út lyf, sem hún átti ekki, í apóteki í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Hún var með fölsuð skilríki. Hald var lagt á fölsuðu skilríkin.
Einn ökumaður var handtekinn í nótt grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna.
Einn ökumaður var kærður fyrir of hraðan akstur í gærkvöldi eftir að hraði bifreiðar hans mældist 114 km/klst á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ en þar er leyfður hámarkshraði 80 km/klst.