Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokað fyrir akandi umferð á vegslóðum umhverfis gosstöðvarnar í Meradölum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu.
Akstur utan vega er stranglega bannaður en umferð er óheft um Reykjanesbraut og Suðurstrandarveg.
Í tilkynningunni segir ennfremur:
„Viðbragðsaðilar eru við gosstöðvarnar og fólki er eindregið ráðið frá því að leggja leið sína á svæðið á meðan vísindamenn og viðbragðsaðilar eru við störf enda skammt liðið frá upphafi goss.
Viðbragðsaðilar koma til með að meta aðstæður reglulega og það getur komið til þess að rýma þurfi svæði nær gosstöðvunum án nokkurs fyrirvara. Gasmengun er við gosstöðvarnar en vindátt er hagstæð eins og sakir standa.“