Stöðug skjálftavirkni hefur verið í nótt á Reykjanesi og allnokkrir skjálftar mælst yfir 4 að stærð. Um kl hálf 7 höfðu ríflega 700 skjálftar mælst á Reykjanesi frá miðnætti samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu. Engin merki um gosóróa hafi þó mælst.
Um kl.3.14 í nótt varð skjálfti af stærðinni 4,3 við suðurenda Fagradalsfjalls. Skjálftinn fannst vel á Suðvesturhorninu og hafa Veðurstofunni borist tilkynningar allt austur úr Fljótshlíð um að skjálftans hafi orðið vart. Skjálftinn var á 3,8 km dýpi og má gera ráð fyrir að um gikkskjálfta hafi verið að ræða líkt og fyrr í kvöld þegar skjálfti af stærðinni 5,4 átti upptök sín nærri Grindavík.
Réttu um tíu mínútum síðar barst ritstjórn önnur tilkynning um skjálfta af svipaðri stærðargráðu, nú 4,2 af stærð og norðvestur af Þorbirni.
Um kl.6.27 Þá mældist skjálfti upp á 4,7 um hálfan kílómetra vestur af Litla Hrút. Skjálftinn mældist á 3,8 km dýpi.