Reuters fréttastofan segir að Rússar muni skrúfa frá gasinu á nýjan leik en flæðið verði skert frá því sem áður var.
Nord Stream 1 leiðslan kemur í land í norðurhluta Þýskalands og er mjög mikilvæg fyrir flæði rússnesks gass til Þýskalands og fleiri ríkja. Leiðslan er alltaf lokuð um tíma á sumrin vegna viðhaldsvinnu. Samkvæmt samningi Rússa og Þjóðverja þá á viðhaldsvinnunni að ljúka á morgun og þá á gasið að fara að streyma um leiðsluna á nýjan leik.
Miklar vangaveltur hafa verið uppi að undanförnu um hvað Rússar muni gera og hafa margir veðjað á að þeir muni ekki skrúfa frá gasinu á nýjan leik.
Reuters hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum að Rússar muni skrúfa frá gasstreyminu á morgun en þó verði flæðið aðeins um 40% af því sem það er venjulega.
En evrópskir stjórnmálamenn eru ekki bjartsýnir og undirbúa sig undir að grípa til neyðaráætlana til að mæta gasskorti. Johannes Hahn, sem fer með fjármál og stjórnsýslumál hjá Framkvæmdastjórn ESB, sagði í samtali við Bloomberg að ekki sé reiknað með að Rússar skrúfi aftur frá gasinu og unnið sé út frá því að Nord Stream 1 verði ekki tekin í notkun á nýjan leik.
Það er ekki mikil þörf fyrir gas þessa dagana til að kynda hús því miklir hitar herja á stóran hluta meginlands Evrópu. En þýskur iðnaður er mjög háður rússnesku gasi og gas er einnig notað til raforkuframleiðslu en mikil þörf er á rafmagni þessa dagana til að hægt sé að nota loftkælingar í hitasvækjunni.
Ef Rússar loka fyrir gasið getur það haft alvarlegar afleiðingar fyrir Evrópu, ekki síst í haust þegar fólk þarf að byrja að kynda heimili sín. Spár gera ráð fyrir að verg þjóðarframleiðsla ESB dragist saman um 1,5 til 2,5% ef Rússar loka fyrir gasið.