Bjarki Hólmgeir Halldórsson hefur um árabil haldið úti Facebook-síðunni Íslensk mannshvörf þar sem birtast reglulega færslur um Íslendinga sem hafa horfið sporlaust. Áhugamálið vatt upp á sig þegar bókin SAKNAÐ kom út árið 2019 en nú er framhaldsverkefni í gangi samkvæmt tilkynningu frá Bjarka.
Bjarki er frá Aðaldal og á síðunni óskar hann eftir upplýsingum um hvarf sveitunga síns sem hét Árni Magnússon Árnason. Hundrað ár eru liðin frá því að Árni hvarf með dularfullum hætti og er lítið til af upplýsingum um atburðinn. Vonast Bjarki til að frásagnir af Árna eða hvarfinu gætu hafa lifað mann frá manni eða einhverjir verið með eða legið á dagbókum forfeðra sinna frá þessum tímabila þar sem eitthvað mætti finna um þennann atburð. Óskar Bjarki því eftir að slíkum upplýsingum verði komið til sín, hversu smávægilegum sem þær eru.
Í færslunni kemur fram að Árni var fæddur í Rauðuskriðu í Aðaldal 30.september árið 1901. Hann var sonur hjónana Friðriku Bjarnadóttur og Árna Jónssonar. Síðar búa þau á Jódísarstöðum í Aðaldal.
Segist Bjarki hafa upplýsingar um að Árni hafi hafi verið kallaður Árni Magg og verið kennari hjá Vilhjálmi Friðlaugssyni í Torfunesi árið 1920.
„Haustið 1921 flytur hann til Reykjavíkur til að vera nær heit mey sinni. Einhverntiman á tímabilinu 04. nóvember 1921-03. febrúar.1922 hverfur hann sporlaust. Nákvæmari dagsettning liggur ekki fyrir og engar skýrslur eða gögn hafa fundist á þjóðskjasafninu um hvarf hans. Ég er búinn að vera í góðum samskiptum við Árna Njálsson á Jódísarstöðum um málið og vaknaði sú hugmynd að auglýsa eftir upplýsingum,“ skrifar Bjarki.
Hægt er að nálgast upplýsingar um hvernig best er að komast í samband við Bjarka á Facebook-síðunni Íslensk Mannshvörf.