Ingvar Lundberg tónlistarmaður er látinn, 56 ára að aldri. Ingvar var hljómborðsleikari í hljómsveitinni Súellen og meðal annars tilnefndur til Edduverðlauna fyrir hljóðmynd úr kvikmyndinni Dýrið.
Í tilkynningu sem hljómsveitin birti á Facebook segir:
Besti og ljúfasti vinur okkar og förunautur, Ingvar Lundberg hljómborðsleikari í Súellen er látinn. Hversu ósanngjarnt og ömurlegt. Sorg og söknuður umlykur allt. Það er erfitt að ná utan um að þessum góða dreng hafi verið gert að fara svona snemma.
Ingvar auðgaði líf fólks sem í kring um hann var, hlustaði og gaf, dillandi hláturinn, hrókur alls fagnaðar, dásamlega skemmtilegur, gáfaður í meira lagi og ekki síst einstakur tónlistarmaður og kvikmyndahljóðhönnuður. Arfleifð Ingvars er merkileg og dýrmæt, meira um það síðar.
Við sendum fjölskyldu og aðstandendum innilegar samúðarkveðjur.
Súellen
DV vottar fjölskyldu og aðstandendum Ingvars innilegar samúðarkveðjur.