Kristín Tómasdóttir, fjölskyldumeðferðarfræðingur, hefur sent bréf á alla borgarfulltrúa í Reykjavík vegna svikinna loforða meirihlutans í leikskólamálum.
Eitt stærsta kosningamál Samfylkingarinnar og Viðreisnar, sem tilheyra bæði gamla og nýja meirihlutanum í borginni, var að 12 mánaða börn kæmust inn á leikskóla borgarinnar í haust.
Raunar var send út sérstök fréttatilkynning um málið frá Reykjavíkurborg í marsmánuði þar sem sagði: „Byrjað verður á að taka á móti 12 mánaða börnum í leiksóla borgarinnar í haust.“
Innan við mánuði eftir kosningar gaf Dagur B. Eggertsson borgarstjóri síðan út að ekki væri víst að hægt væri að uppfylla þetta kosningaloforð.
Kristín er ein þeirra sem hafði reiknað með því að fá leikskólapláss fyrir barnið sitt í haust, dóttur sem verður 18 mánaða þann 3. september. Hún og hennar fjölskylda bíða hins vegar enn í óvissu.
„Ég sé ekkert annað í stöðunni en að við foreldrar hennar minnkum við okkur starfshlutfall og greiðum minna útsvar til borgarinnar. Um leið og það tekur gildi mun ég mæta á pallana í Ráðhúsinu með barnavagninn með mér og hvet alla foreldra í svipaðri stöðu til þess að gera slíkt hið sama. Það verður fróðlegt að sjá hversu langan tíma það tekur ykkur kjörna borgarfulltrúa að redda leikskólaplássum undir þessi börn þegar þið fáið ekki vinnufrið fyrir þeim sjálf,“ segir Kristín í bréfinu sem hún sendi borgarfulltrúum.
Hún er orðin langþreytt á því að stjórnmálamenn tali á skjön við sannleikann í fjölmiðlum.
„Ég get ekki hlustað á fleiri stjórnmálamenn ljúga því í fjölmiðlum að öll börn 12 mánaða og eldri fái leikskólapláss í haust. Ég er í stanslausum bréfaskriftum við innritunardeild leikskóla hjá Reykjavíkurborg (því þar treysta þau sér ekki til að taka við símtölum frá reiðum foreldrum). Í hverju bréfi fæ ég yfirlit yfir það hvar dóttir mín er á biðlistum á mismunandi leikskólum borgarinnar og mér bent á að hringja í leikskólana til að skoða möguleika hennar á plássi. Svörin sem ég fæ frá leikskólastjórunum er að það sé ekki mikill séns á plássi í haust,“ segir Kristín í bréfinu.
Hún gefur líka lítið fyrir vinnubrögð hjá borginni þegar kemur að biðlistum á leikskóla og svikin loforð.
„Það er ekki hægt að afsaka þessa stöðu með neinu öðru en metnaðarleysi í mín eyru. Metnaðarleysi sem veldur mér og minni fjölskyldu gríðarlegum kvíða fyrir haustinu og ég veit fyrir víst að við erum ekki ein í þeirri stöðu,“ segir hún.